80 ára gamalt hitamet féll víða á Bretlandseyjum í dag en mikil hitabylgja geisar á eyjunum. Í Kew Gardens í London náði hitinn hæst 34,8 gráðum í dag en um hæsta hita er að ræða í maímánuði síðan 1944 þegar hiti mældist 32,8 gráður.
Hitamet í maí voru einnig sett víðar m.a. í Wales. Að sögn bresku veðurstofunnar er um óvenjulegan hita í Bretlandi að ræða jafnvel um mitt sumar, hvað þá í maí.
Jóhann Jónsson sendi mbl.is skemmtilegar myndir af ströndinni í Brighton á suðurströnd Englands en þúsundir hafa flykkst þangað í hlýindunum. Hitastigið náði þó ekki sömu hæðum á suðurströndinni og í höfuðborginni eða aðeins 28 gráðum þegar mest lét í dag.
Sólin virkar sterk
Linda Sóley James er búsett í Shoreham-By-Sea, um 10 kílómetrum vestur af Brighton.
Í stuttu spjalli við mbl.is segir Linda Sóley virkilega hlýtt, fólk sé léttklætt og að sólin virki mjög sterk.
„Ég sat á kaffihúsi á laugardaginn með vinum mínum og mér leið eins og ég væri í Taílandi. Ég keyrði fram hjá ströndinni þann dag og hún var alveg pökkuð af fólki.“
Enn hærri hiti á morgun
Linda segir yfirleitt ekki svona hlýtt á Englandi. „Síðustu ár hefur mér fundist maí vera frekar kaldur. Þar sem veður er gott er fólk mjög duglegt að fara út og nýta daginn og sólina. Það var rok og rigning hérna fyrir örfáum vikum og fólk bjóst alls ekki við þessu,“ segir Linda.
Búist er við enn hærri hita á morgun og að á suðausturströnd Englands muni hitinn ná yfir 35 gráðum.

