Um 35 listamenn frá ólíkum heimshornum hafa dvalið á Eyrarbakka frá 15. maí til að vinna sín fjölbreyttu listaverk, sem lýkur með sýningum, gjörningum, tónlistarviðburðum, opnum vinnustofum og fjölbreyttri dagskrá fyrir almenning nú um helgina og næstu helgi.
Hátíðin er listamannarekið frumkvæði sem byggir á samveru, samstarfi og tengingu við staðinn. Á hverju ári breytist Eyrarbakki því í lifandi samfélag listamanna þar sem ný verk, samtöl og vináttubönd verða til í nánu sambandi við sögu þorpsins, náttúru þess og íbúa.
„Þetta er sem sagt vinnustofa í mánuð þar sem listamenn eru saman að skapa og vinna, borða og tala. Síðan endar þetta allt saman með sýningu þar sem afraksturinn er sýndur og það er núna á laugardaginn,” segir Ásta Vilhelmína Guðmundsdóttir listakona og ein af stjórnendum hátíðarinnar.
Formleg opnun fer fram klukkan 13:00 laugardaginn 13. júní í Óðinshúsi og svo verður opið á sunnudaginn og líka helgina 19. til 21. júní.
„Þetta er voða skemmtilegt og við reynum að vinna, sem mest með samfélaginu líka og mikið með skólanum og leikskólanum og bjóðum fólk velkomið að kíkja til okkar bara hvenær sem er,” segir Ásta, sem er sjálf að sjálfsögðu með verk á sýningunni. Og það er Soffía líka en hún málar myndir.
„Þetta er algjörlega frábært, þetta er einstakt alveg og þetta er svona lyftistöng fyrir Suðurland myndi ég segja, ég er mikið Suðurlandsmanneskja,” segir Soffía Sæmundsdóttir myndlistarmaður.
Og Ragna Fróðadóttir, sem býr í New York, lætur sig ekki vanta á Eyrarbakka þegar menning og list er annars vegar.
„Ég er að mála á þennan vegg, sem er fyrir aftan mig og ég er búin að framkalla hérna vættir og verur sem eru minn hugarheimur og koma hér upp á land úr sjónum og koma til að boða meira jafnvægi og frið og meiri meðvitund um umhverfisvæna hugsun,” segir Ragna og bætir við:
„Það er rosalega gaman að koma hérna og gaman að koma á Eyrarbakka, þetta er frábær staður og það er búið að vera yndislegt að vera hérna í þennan tíma”.
Einn af listamönnunum kemur alla leið frá Mauritius til að taka þátt í verkefninu á Eyrarbakka en hann heitir Manou Soobhany og hefur alltaf tekið þátt í hátíðinni í þessi fimm ár.