Aflögun og landris heldur áfram við Svartsengi. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að landris nemi áfram um tveimur sentimetrum á mánuði.
Landris og kvikusöfnun á svæðinu mælast með svipuðu sniði og síðustu vikur og samkvæmt líkanreikningum hafa tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí í fyrra.
Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni.