Kona ók út af vegi á Bolafjalli við Bolungarvík í dag og valt bíllinn um 200 metra niður. Betur fór en á horfðist og konan var flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði með minni háttar áverka. Bíllinn er að öllum líkindum ónýtur. Tildrög slyssins eru óþekkt enn sem komið er.
Bolafjall er nærri 700 metra hátt. Upp fjallið liggur brattur og þröngur vegur sem er að mestu malarvegur. Lögreglan fékk tilkynningu um bílveltuna á þriðja tímanum, að sögn Hlyns Snorrasonar yfirlögregluþjóns.
„Það voru tveir lögreglubílar, sjúkrabílar og tækjabíll frá slökkviliðinu. Og við kölluðum út björgunarsveit og þyrlu en þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang þá var ökumaður einn í bílnum og með minni háttar meiðsl. Ótrúlegt nokk. Viðkomandi gat meira að segja gengið,“ segir Hlynur.