Af öryggisástæðum mega börn ekki lengur vera fylgdarlaus í útiklefa Laugardalslaugar, Vesturbæjarlaugar og Sundhallarinnar í Reykjavík. Útiklefar eru aðskildir öðrum búningsklefum í þessum laugum og þar hefur starfsfólk ekki fasta viðveru.
Frá og með 1. júlí er 18 ára aldurstakmark í útiklefa Laugardalslaugar og Vesturbæjarlaugar nema börn og ungmenni séu í fylgd með fullorðnum. Aldurstakmarkið tekur gildi í Sundhöllinni í Reykjavík þegar viðhaldi búningsklefa lýkur.
„Þetta er með engum hætti gert til þess að takmarka aðgang ungmenna að laugunum heldur fyrst og fremst til að tryggja öryggi þeirra og jákvæða upplifun þegar þau heimsækja sundlaugarnar í Reykjavík,“ segir Lína Petra Þórarinsdóttir, forstöðumaður markaðsmála á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar.
„Það er ekki hægt að tryggja fasta viðveru starfsfólks í þessum útiklefum með sama hætti og í inniklefunum og þess vegna er þessi ákvörðun tekin, eftir rýni þeirra sem fara með öryggismál í sundlaugunum, til að tryggja sem best öryggi ungmenna í laugunum.“
Sextán ára stúlka var áreitt kynferðislega í útiklefa í Sundhöllinni fyrir tveimur árum eins og Vísir greindi frá í apríl.
Var farið að skoða þetta í tengslum við mál sem hafa komið upp í útiklefum?
„Ég get ekki tjáð mig um einstaka mál en já, vissulega, það hafa komið upp atvik í laugum. Í hvert skipti sem atvik koma upp í sundlaugum eru þau tekin til skoðunar sérstaklega og rýnd út frá öryggisatriðum, hvort og þá hvað er hægt að gera til að tryggja öryggi enn betur.“
Aldurstakmarkið er niðurstaða slíkrar úttektar.
„Öryggi gesta er auðvitað alltaf fyrsta, annað og þriðja mál hjá sundlaugunum og það er stöðugt verið að rýna öryggisatriði í laugum. Þarna var verið að skoða sérstaklega öryggi ungmenna í klefum og þessi ákvörðun er tekin til þess að tryggja það að ungmenni séu ekki í þeirri stöðu að vera ein á svæðum þar sem ekki er hægt að tryggja að starfsmaður sé stöðugt til staðar,“ segir Lína Petra.