Sjö myndarlegar holur voru grafnar með tilþrifum af helstu bakhjörlum verkefnisins. Sunnan Sjúkrahússin á Akureyri á að reisa yfir þrettán þúsund fermetra bygging, sem mun stórbæta aðstöðu lyflækninga-, skurð- og geðdeildar.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki að mestu eftir fjögur ár, 2030 og árið eftir verði byggingin tekin í notkun. Heilbrigðisráðherra sagði við athöfnina í dag að bygging sjúkrahúss væri engin geimvísindi - heldur í raun talsvert flóknara.
„Auðvitað geta alltaf orðið einhverjar tafir, en það er samt komin heilmikil reynsla hjá Nýjum Landspítala ohf., sem fer með þetta verk, í að byggja,“ segir Alma, spurð hvort sé raunhæft að byggingin verði risin eftir fimm ár.
Það eru ekki nema 18 dagar síðan nýr forstjóri sjúkrahússins stimplaði sig inn á sína fyrstu vakt. Á þeim tíma hefur komið í ljós að gamli Kristnesspítali er ónothæfur vegna myglu- og rakaskemmda, en þar hefur SAk rekið endurhæfingar- og öldrunardeild.
Viðbúið að þurfi að skerða þjónustu vegna lokunar Kristness
Enn er verið leita lausna þar, en stefnt á að leigja 800 fermetra húsnæði frá 1. september.
„Þegar við þurfum að gera svona miklar breytingar á því þá er viðbúið að það verði einhver þjónustuskerðing, en við erum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að að tryggja það að þjónustan verði eins góð og kostur er“, segir Guðjón Hauksson, forstjóri SAk.
Tækifæri til að byggja meira þegar fram líða stundir
Og það segir aðeins hluta sögunnar því það hefur verið húsnæðisvandi víðar og í um tuttugu ár hefur þörfin fyrir nýja byggingu við SAk legið fyrir. Í því skyni segir Alma ekki úr vegi að fara að huga að frekari stækkun.
„Það er rými hérna í kring, þannig það er alveg tækifæri til að byggja enn meira þegar fram líða stundir“, segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra.