Bandaríska stórblaðinu Washington Post hefur verið gert að endurráða dálkahöfundinn Karen Attiah sem sagt var upp störfum vegna ummæla hennar um Charlie Kirk að honum myrtum.
Karen Attiah skrifaði færslur á samfélagsmiðla þar sem hún kvaðst ekki sorgmædd vegna andláts Kirks og deildi eldri ummælum hans um að svartar konur þyrftu á áætlunum um fjölbreytileika að halda því þær væru ekki nógu vel gefnar.
Það sagði Attiah sýna kynþáttafordóma hans. Charlie Kirk var skotinn til bana á samkomu á háskólasvæði í Utah í september sem varð til þess að Donald Trump forseti boðaði aðhaldsaðgerðir gegn „róttækum vinstrimönnum“. Attiah gagnrýndi forsetann og fylgismenn hans fyrir að gera Kirk að sérstökum píslarvotti fyrir skoðanir hægrimanna.
Hafði starfað við blaðið í 11 ár
Attah, sem hafði starfað við Washington Post í ellefu ár, var síðar sagt upp störfum hjá blaðinu sem sakaði hana um að fara gegn reglum blaðsins um samfélagsmiðlanotkun ásamt því að hafa framið alvarlegt brot í starfi.
Blaðið hefur verið í eigu auðkýfingsins Jeff Bezos síðan 2013. Gerðardómurinn úrskurðaði í gær að stjórnendum Washington Post bæri að endurráða Attiah og greiða henni laun aftur í tímann enda hefði engin ástæða verið fyrir brottrekstri hennar.
Blaðið kveðst munu virða niðurstöðuna en vill að öðru leyti ekki tjá sig um hana. Attiah fagnar niðurstöðunni og segir að hún hafi verið þvinguð úr starfi fyrir að segja sannleikann. Hún hafi jafnframt verið síðasti svarti fastráðni dálkahöfundurinn á blaðinu þegar henni var sagt upp störfum.