Stefnt er á að hleypa umferð á nýjan veg yfir Hornafjarðarfljót í júní. Vonir höfðu staðið til þess að vegurinn yrði tilbúinn fyrir síðustu áramót.
Með nýrri leið um Hornafjörð og yfir Hornafjarðarfljót styttist hringvegurinn um 12 kílómetra. Kynnt var um mitt síðasta ár að vegurinn yrði opnaður fyrir áramót en enn á eftir að leggja klæðingu á hluta vegarins og vonast var til þess að hægt yrði að klára það í vor.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir orðið útséð með að vegurinn verði tilbúinn í maí en vonast til þess að það verði í júní. „En hvenær í júní er erfitt að segja til um.“
„Það á bara eftir að ljúka verkinu í raun og veru. Það bættist við hringtorg sem er núna nýlega búið að malbika seinna lagið á, á seinni stigum. Það hefur ýtt verklokatímanum aftur. Síðan hefur bara verið þannig veður í vetur að menn hafa ekki getað unnið við þetta og raunar alveg fram á vor. Þeir þurftu að fresta malbikun vegna smá snjókomu,“ segir Pétur.
Hann segir veðrið ráða mestu um hvenær verkinu geti lokið. „En ég held að það sé ekki sniðugt að horfa til þess að þetta verði fyrr en frekar seinni hlutann í júní, frekar en fyrri hlutann.“
Skemmdir urðu á nýrri vegarklæðingu á um tveggja kílómetra kafla í vetur, hún brotnaði upp og holur komu í veginn. Vegagerðin segir þetta ekki hafa orðið til þess að tefja framkvæmdina.
„Það á eftir að gera við það. Það hefur ekki tafið verkið í raun svo sem. En það verður lagað. Það er bara spurning hvaða aðferð verður beitt og hvernig best er að gera það. Menn vilja vanda sig.“