Umdæmum lögreglunnar á landsvísu fækkar um helming ef áform Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra verða að veruleika. Hún kynnti hugmyndir sínar um breytt skipulag lögreglu á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku og á fundi lögregluráðs í þessari viku.
Lögregluembættin eru núna níu en ráðherra stefnir að því að fækka þeim í fjögur til fimm. Sérstaklega verður horft til sameiningar embætta á suðvesturhorni landsins. Með þessu stæðu eftir færri en stærri og öflugri embætti. Hvorki á að fækka starfsfólki né lögreglustöðvum.
Í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytisins segir að með þessu eigi að styrkja lögreglu á landsvísu, efla löggæslu og bæta skilvirkni. Vinna við útfærslu er á frumstigi en frumvarps er að vænta í haust.
Skipaður var samráðshópur til að ræða skipulagsbreytingarnar. Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri, Grímur Hergeirsson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands, og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, skipa hópinn.