Nýtt samstarf Sjúkratrygginga Íslands og danska fyrirtækisins Frameshift hefur það að markmiði að nýta íslensk gögn og bera þau saman við danska heilbrigðisgagnagrunna. Samstarfið á að styrkja greiningargetu, styðja við ákvarðanatöku og auka yfirsýn yfir kostnað og árangur í heilbrigðiskerfinu.
Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að í heilbrigðisþjónustu sé mikið af gögnum sem nýta megi í auknum mæli til að bæta ákvarðanatöku í henni. Til dæmis megi skoða hvaða áhrif þjónusta heilbrigðiskerfisins hefur á líf fólks í breiðum skilningi.
„Þetta gagnasafn sem Danirnir hafa búið til gefur tækifæri til að skoða, ekki bara heilbrigðisþjónustu og í hverju heilbrigðisþjónusta felst, heldur líka hvernig sjúkdómar hafa áhrif á líf fólks,“ segir hann.
Þá sé einnig hægt að skoða hvernig aðstoð heilbrigðisþjónustu getur gagnast til að vega upp á móti neikvæðum áhrifum sjúkdóma.
Hann segir að samstarfið geti leitt til betri nýtingar fjár og gefið innsýn í hvaða inngrip hafi jákvæðustu áhrifin.
Byrja á endómetríósu
Í upphafi samstarfsins verður lögð áhersla á afmörkuð verkefni. Fyrst verður sjónum beint að endómetríósu.
Sigurður bendir á að sjúkdómurinn sé oft álitinn falinn vandi sem ekki hafi verið sinnt með fullnægjandi hætti. Hann getur jafnframt haft mikil neikvæð áhrif á daglegt líf og atvinnuþátttöku.
„Þess vegna er þetta gott dæmi til þess að skoða. Skoða samhengi þess að búa við þennan sjúkdóm, að hljóta tiltekna þjónustu og hvaða áhrif það hefur á lykilbreytur í lífi sjúklinganna – eins og bara atvinnutekjur, atvinnuþátttöku og svo framvegis.“
Sigurður útskýrir að tengingin við danska gagnasafnið bjóði upp á það að tengja gögn úr heilbrigðisþjónustu við fjölbreytt gögn sem lýsa stöðu fólks. „Það er spennandi fyrir okkur að kanna það,“ segir hann.