Þetta sagði hún eftir að mikill meirihluti þingmanna samþykkti ályktunartillögu stjórnarandstöðunnar um að banna síma í skólum með lögum.Hingað til hefur það eingöngu verið lagt til en ekki skilyrt en símar eru bannaðir í flestum skólum í Englandi, samkvæmt frétt BBC.Sky News hefur eftir leiðtoga eins af verkalýðsfélögum kennara í Englandi að breytingin muni skýra línurnar varðandi símabann og setja alla skóla í sömu stöðu. Forsvarsmenn verkalýðsfélaga kennara í Englandi hafa áður lýst yfir stuðningi við símabann.Smith sagði á þingi í dag að með breytingunum, sem greiða á atkvæði um á miðvikudaginn, yrði nemendum gert að vera með slökkt á símum sínum í skólanum og ekki hafa þá uppi við.
Vilja festa símabannið í lög - Vísir