Vildu senda unga menn með leikfangabyssur úr landi
Stjórnmálamenn og áhrifavaldar brugðust hart við frétt af mönnum sem lögreglan á Akureyri handtók fyrir vopnalagabrot. „Allir þeir sem voru handteknir voru frá Mið-Austurlöndum,“ skrifaði nefndarmaður í Sjálfstæðiflokknum á samfélagsmiðli. Vopnin reyndust vera leikfangabyssur en færslurnar standa óleiðréttar.
Formaður Miðflokksins sagði að bregðast þyrfti við atburðum eins og ætluðu vopnalagabroti fimm ungra manna á Akureyri um helgina „annars missum við Ísland“. Stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling vildi láta henda þeim úr landi, annars mundi Ísland þróast í slæma átt.
Skömmu síðar kom í ljós að byssurnar voru leikföng.
Fimm menn í kringum tvítugt, sá yngsti 17 ára og sá elsti 22 ára samkvæmt frétt Vísis, voru handteknir af lögreglunni á Akureyri á sunnudag grunaðir um vopnalagabrot. Samkvæmt frétt RÚV barst lögreglunni tilkynning um menn með skotvopn í fórum sínum á tveimur bílum. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til og fann bílana mannlausa í miðbæ Akureyrar, nálægt svæðinu þar sem útihátíðin Ein með öllu fór fram.
Þegar mennirnir snéru aftur í bílana veitti lögreglan þeim eftirför. „Svo kemur í ljós, þegar verið er að fara á eftir þeim, að þeir eru að veifa einhvers konar vopni út úr ökutækjunum, eða …