Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og þingmaður Samfylkingarinnar, vill að svo stöddu ekki veita viðtal um þann niðurskurð sem boðaður er á framhaldsskólastiginu í drögum ríkisstjórnarinnar að fjármálaáætlun.
Þá hefur hvorki náðst í Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra né Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra vegna málsins.
Í drögum að nýrri fjármálaáætlun er ráðgert að fjárframlög til framhaldsskóla dragist saman um 7,1% á næstu fimm árum, fari úr 53,2 milljörðum árið 2027 í um 49,4 milljarða árið 2031.
Þetta er meiri niðurskurður en gert hafði verið ráð fyrir í fyrri fjármálaáætlun.
Hann er einnig gerður á sama tíma og stærstu árgangar Íslandssögunnar til þessa hefja framhaldsskólanám, og að baki er hrun í námsgetu og lestrarfærni barna hér á landi í alþjóðlegum samanburði.
Mætti ekki á málþingið
Morgunblaðið óskaði eftir viðtali við Víði Reynisson um þessi áform. Hann baðst undan því og sagðist ekki vilja tjá sig um málið fyrr en fjárlaganefnd hefði lokið vinnu við fjármálaáætlunina.
Í síðustu viku greindi mbl.is frá því að enginn stjórnarþingmaður úr nefndinni hefði þegið boð á málþing um íslenskukennslu og stöðu læsis í grunnskólum, sem Íslensk málnefnd stóð fyrir í samstarfi við sérfræðinga á menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Aðeins tveir þingmenn úr nefndinni þáðu boðið og tóku þátt í málþinginu, þeir Jón Pétur Zimsen úr Sjálfstæðisflokki og Snorri Másson úr Miðflokki.
Lestu umfjöllunina í heild sinni: