Hópur félaga í Samfylkingunni og fólks sem titlar sig óflokksbundið jafnaðarfólk krefst þess að framkvæmd laga um brottvísunarstöð sem samþykkt voru í vikunni verði stöðvuð þar til tryggt hefur verið að börn verði ekki frelsissvipt. Nýkjörinn borgarfulltrúi segir stefnu flokksins í málaflokknum skýra.
Óánægja innan flokksins ekki ný af nálinni
Hópurinn birti áskorun til forystu flokksins á Vísi og undir hana rita 55 manns, þar á meðal Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi formaður, Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi ráðherra og þingmaður og aðrir sem gegnt hafa trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins, Stein Olav Romslo, er á listanum.
„Við höfum séð hægri bylgju í landinu, til dæmis í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum og þessi stefna í útlendingamálum hefur fengið fótfestu á mörgum stöðum undanfarið. Mér þykir það dapurt,“ segir Stein Olav. Stefna flokksins í þessum málaflokki sé skýr.
„Það eru aðrir sérfróðari aðilar sem hafa bent á og sýnt fram á fleiri lausnir. En mín afstaða er kannski bara einföld: Við hljótum að geta fundið aðra lausn en að frelsissvipta börn.“
Stein Olav segir þessa óánægju innan flokksins ekki nýja af nálinni. Umræða hafi verið í grasrótinni og þrýstingur frá öðrum félagasamtökum á meðan málið var í meðförum þingsins. Hann geri ráð fyrir að málið verði tekið fyrir á næstunni á vettvangi grasrótarinnar.
„Og síðar kannski í flokksstjórn og á landsfundi flokksins.“
Miðflokkur og Framsókn sátu hjá
Það var nokkurn veginn breið sátt um málið á þingi. Miðflokkurinn og Framsókn sátu þó hjá en lýstu því þó yfir að þau væru ekki mótfallin brottvísunarstöð sem slíkri.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er fólk innan þingflokks Samfylkingarinnar á því að frumvarpið um brottfararstöð hafi verið mjög vel unnið og að þær breytingar sem gerðar voru á málinu hafi verið til góðs. Áður en lögin voru samþykkt hafi staðan verið sú að þegar vísa átti fjölskyldum úr landi þá voru foreldrarnir handteknir og börnin send í fóstur. En með þessu sé búið að tryggja að fjölskyldunni verði ekki tvístrað fyrir brottvísun.
Enn fremur hafi verið gerðar þær breytingar að fjölskyldur eigi rétt á dvalarstað þar sem þær hafa aðgengi að eldhúsi, salerni, svefnrými og leiksvæði úti og inni, með öðrum orðum hús eða íbúð með garði.