Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið vegna verkfalls flugvirkja sem hófst á miðnætti.
Um er ræða að 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka og fimm flugferðir innanlands frá Reykjavík og til baka. Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5.500 farþega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.
Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar.
İ kjölfarið verða ákvarðanir teknar skref fyrir skref eftir því sem fram vindur, en alltaf með nægilegum fyrirvara þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu, það er með að minnsta kosti 4-6 klst fyrirvara.
Að sama skapi verður tímabil sveigjanlegra endurbókana uppfært eftir því sem staðan þróast, segir í tilkynningunni.
Fréttin verður uppfærð.