Bandaríski „looksmaxxing“-áhrifavaldurinn Braden Peters, sem kallar sig Clavicular, er ákærður fyrir að nauðga stúlku undir lögaldri, gefa henni áfengi og byrla henni ólyfjan í kynferðislegum tilgangi.
Samkvæmt ákærunni áttu meint brot sér stað í maí í fyrra.
Peters neitar sök. Talsmaður hans sagði við CBS News að ákærurnar væru „rugl“. Stúlkan, sem nú er 18 ára, höfðaði einkamál gegn Peters fyrr á árinu. Hún segir hann hafa gefið sér nokkra staupa af vodka og haft samræði við hana án samþykkis á heimili foreldra hans í Cape Cod í Massachusetts.
Stúlkan segist hafa verið ólögráða þegar Peters, sem er tvítugur, á að hafa brotið á henni. Hún sakar hann einnig um að hafa sprautað sig í andlitið með einhvers konar ólöglegu efni sem eigi að leysa upp fitu.
Ber sig í andlitið með hamri
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Clavicular ratar í fréttir RÚV. Hann er þekktur fyrir að vera forsprakki í „looksmaxxing“-hreyfingunni og hefur hvatt fylgendur sína til að berja sig í andlitið með hamri til að bæta beinabyggingu í andliti, það sem hann kallar „bone-smashing“. Hann talar fyrir því að nota peptíða til að bæta útlit og hefur sagst nota amfetamín til að grenna sig. Megininntakið í boðskap Clavicular virðist vera að fólk verði að líta vel út til þess að ná langt í lífinu.
Hann hefur safnað stórum fylgjendahópi og er til að mynda með milljón fylgjendur á Instagram og 1,2 milljónir fylgjenda á TikTok.
Dauður krókídíll og slagsmál í Flórída
Áhrifavaldurinn hefur áður komist í kast við lögin. Fyrr á árinu var hann ákærður í Flórída eftir að hafa tekið upp myndband af sér skjóta það sem virtist vera dauður krókódíll. Hann játaði ekki sök en mótmælti ekki ákærunni um að hafa ólöglega hleypt af skotvopni á almannafæri.
Í mars var hann handtekinn í Flórída, grunaður um að hafa ýtt undir slagsmál milli tveggja kvenna. Yfirvöld tilkynntu síðar í júlí að þau hygðust ekki leggja fram ákæru.
Eftir að ákærurnar í Massachusetts urðu opinberar birti Peters myndband á samfélagsmiðlinum X þar sem hann skrifaði: „Þetta kemur fyrir alla farsæla unga menn, fólk reynir að komast í peningana þína.“