Í tilkynningu frá bænum segir að á fundinum verði kynntar fyrstu niðurstöður úr vinnu við nýtt áhættumat fyrir Grindavík. Lokið hafi verið við grunnvinnuna: Gagnalíkan, mælikvarða, vinnuferli og lifandi kerfi sem heldur utan um áhættuvísa og mótvægisaðgerðir fyrir Grindavík.
„Aðferðafræðin byggir á samráðsferli sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði um áhættumiðaða ákvarðanatöku fyrir Grindavík, í þremur þáttum: Öryggi, húsnæði og skólahaldi. Með þessari vinnu hefur verið lagður grunnur að lifandi áhættumati með 23 áhættuvísum og 150 mótvægisaðgerðum sem snerta daglega tilveru í Grindavík. Markmiðið er að með virkum aðgerðum verði unnt að tryggja öryggi fólks sem dvelur, býr eða starfar í Grindavík, á sambærilegan hátt og í öðrum byggðarlögum sem búa við náttúruvá.“
Næstu skref verði síðan opinbert lifandi áhættumat með gagnsæi og rekjanleika, þar sem allir geti séð á hverju ákvarðanir byggja og hvernig niðurstöður eru fengnar.