Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu á samfélagsmiðlum. Lögregla segir að ekki þurfi að hafa mörg orð um hættuna af slíku.
„Og viljum við biðla til foreldra að ræða við börn sín um hættuna af svona athæfi, jafnframt að brýna fyrir þeim sem eru á hjólum að kanna með festinguna áður en lagt er af stað. Allar tilkynningarnar sem lögreglu bárust áttu sér stað við skólalóð hér í bæ.“