Sett hefur verið í loftið eins konar fréttastöð um störf Donald Trump Bandaríkjaforseta. Ber hún nafnið Trump Tv og kemur í kjölfar deilna forsetans við fjölda fjölmiðla eftir að forsetinn bannaði þremur fjölmiðlum að hafa frétta- og myndatökumenn í Hvíta húsinu. Aðrir fjölmiðlar brugðust þá við með því að hætta að senda frétta- og myndatökumenn til að fylgja forsetanum eftir. Gagnrýnendur og andstæðingar forsetans segja nýju stöðina minna á ríkissjónvarpsstöðvar í einræðisríkjum sem sendi út fátt annað en áróður sem gangi út á að lofa valdhafann.
Stofnar eigin fréttastöð eftir að fjölmiðlar létu hart mæta hörðu - Vísar til fordæmis um bann gegn fjölmiðli frá tíð Obama