„Það má segja að Grænland fái mest út úr þessum samningi,“ segir Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur, um varnarsamninginn sem Danir, Bandaríkjamenn og Grænlendingar undirrituðu í dag.
„Auðvitað er þetta í fyrsta lagi gríðarlegur léttir fyrir Grænlendinga að samningur sé í höfn og að vonandi fái samfélagið bara að vera í friði.“
Grænland hefur fulla aðild að samningnum að sögn Vilborgar sem veiti þeim aukið vægi í ákvarðanatöku. „Grænland getur orðið sjálfstætt ríki og samningurinn heldur og það er talið vera grundvallaratriði fyrir sjálfstæði Grænlands.“
Vilborg segir ekki öruggt að Trump muni hætta að tala um að Bandaríkin eignist Grænland. „En vonir standa að minnsta kosti til að þetta haldist og að nú komist ró á þessi mál.“
Líka léttir fyrir Íslendinga
Vilborg segir líka létti fyrir Íslendinga að samningur hafi náðst. „Það gætu verið einhver efnahagsleg tækifæri sem gætu falist í þessum umsvifum en sömuleiðis gæti einhverjum fundist þetta neikvætt, aukin hernaðarleg umsvif á okkar svæði, í okkar næsta nágrenni.“
Samningurinn byggist á varnarsamningi sem var fyrst undirritaður 1951 og uppfærður 2004.
Samkvæmt honum fá Bandaríkin tvær nýjar herstöðvar, í Narsarsuaq, þar sem hefur verið bandarísk herstöð áður, og Mestersvig. Þau mega líka stækka herstöðina í Pituffik og hafa möguleika á að auka umsvif sín enn frekar, meðal annars með því að fjölga varnarsvæðum.
Þá eiga Bandaríkin rétt á að gera athugasemdir við framkvæmdir, aðstöðu eða mannvirki í nágrenni varnarsvæðis. Skýrt er kveðið á um hvaða ríki megi ekki fjárfesta í svokölluðum viðkvæmum geirum á Grænlandi. Það eru ríki sem eru ekki í ESB, NATO eða samstarfsríki NATO.
Annað sem vekur athygli er klausa um að Bandaríkin megi koma upp öflugu loftvarnarkerfi sem gengur undir nafninu Gullhvelfingin.
Næsta skref er að þingið í Danmörku og þingið í Grænlandi samþykki samninginn.