Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær?
Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, voru gestir Kastljóss í kvöld.
„Eftirspurnin eftir þessum bílum er bara ekki næg,“ segir Steingrímur. Hann segir ferðamenn ekki vilja leigja rafbíla. Bílaleigan hafi prófað að bjóða upp á dýra rafbíla á sama verði og litla fólksbíla sem gangi fyrir bensíni en ferðamenn velji nær alltaf frekar bensínbíla. Margir ferðamannanna sem komi til landsins hafi ekki keyrt rafbíl áður og treysti ekki aðstæðum á Íslandi til að láta á það reyna.
Að sögn Steingríms þarf að „troða ferðamönnum upp í rafbíla“.
Gulrætur og svipur
Jón Ásgeir segir enga tæknilega fyrirstöðu fyrir rafvæðingu bílaflotans. Ef skipta ætti öllum bílaflota landsins fyrir rafbíla yrði raforkuþörf þeirra tæpt eitt prósent af raforkuþörf heimilanna, að sögn Jóns Ásgeirs. „Þannig að það yrði ekki sérstakt vandamál.“
Umhverfis- og orkustofnun spáir því að losun vegna samgangna dragist mjög hratt saman á næstu árum og verði komin niður í nánast ekkert í kringum 2050. Til þess að ná markmiðinu þurfi að beita bæði gulrótum og svipum, segir Jón Ásgeir.
troða ferðafólki inn í rafmagnsbíla