Íbúi í fjölbýlishúsi greinir frá því að nágranni hans spili bænaköll klukkan fimm á morgnanna. Hann segir nágranna sinn ekki taka tillit til sín og þetta skerði svefninn.„Nágranni minn er múslimi og spilar bænakall (adhan) mjög hátt í kringum kl. 5 á morgnana. Þetta vekur mig,“ segir íbúi í fjölbýlishúsi í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit. Þetta sé hvern einasta morgun. Íbúðirnar eru hlið við hlið og hljóðið berst í gegnum vegginn.
Nágranninn spilar bænakall mjög hátt eldsnemma á morgnana – „Truflar svefninn minn og hefur bein áhrif á daglegt líf mitt“