Gallerí Kichin var stofnað af Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur árið 2022 og í tilefni Listahátíðar Reykjavíkur bauð Kling & Bang þeim að vera með þeirra eigin sýningardagskrá í einu rými gallerísins.
„Af því að þetta er svaka prógramm hjá okkur þá fáum við bara tvo daga í uppsetningu á hverri sýningu, þannig að þetta er svolítil keyrsla,“ segir Skúli í samtali við fréttastofuna og bætir við að „við erum að halda sex sýningar á sjö vikum og í heildina verða fimmtíu og fjórir listamenn að sýna hjá okkur.“
Sýningartímabilið spannar sjö vikur og er þegar hafið
„Fyrsta sýningin stóð bara yfir í tvo daga og svo eru hinar í, hvað er það, þetta er miðvikudagur til sunnudags, sem eru þá einhverjir nokkrir dagar og síðasta sýningin mun standa yfir aðeins lengur því þá erum við að bjóða fjörutíu og einum listamanni að sýna saman,“ segir Skúli.
Galleríið Kling og Bang er til húsa úti á Granda en sýningarrýmið skiptist að sögn Skúla í tvennt og í því rými sem þau í gallerí Kichin eru ekki að sýna mun sýningarhópurinn Hinum megin vera með eina sýningu sem stendur yfir allan sýningartímann.
„Við vorum aðallega bara að pæla í fólkinu og setja saman eitthvað myndlistarfólk sem okkur fannst spennandi að kannski sjá eitthvað samstarf hjá eða sýningu saman. Svo myndi ég segja að þrjár af þessum sex sýningum séu með þema.
Þá var fyrsta var svona „grand opening“ þema,“ útskýrir Skúli en klukkan 17:00 í kvöld verður einkasýningin „Hæhóogjibbíjei” eftir Elísu Þóreyjardóttur.
Gallerí Kichin stofnaði Skúli ásamt Silju Rún Högnadóttur þegar þau voru samnemendur í Myndlist við Listaháskóla Íslands (LHÍ), það var árið 2022.
„Ég er að stefna á að hafa þetta svona smá afmælisveislu lýðveldisins,“ segir Elísa í samtali við blaðamann Vísis. Hún bætir við að hún sé að vinna svolítið mikið með kandífloss og aðrar 17. júní kræsingar.
„Ísland er svo mikið svona nammikrásarþjóð og ég held að það séu ekki mörg lönd sem eru með svona tískubylgjur í nammi heldur,“ segir hún og tekur sem dæmi tímabil þar sem framboð á piparhúðuðu og piparfylltu nammi snarókst.
Gat ekki slitið augun af þeim
„Kveikjan að þessari sýningu var líka svolítið svona partípinni sem Íslensk dreifing er að selja. Þeir eru svo glæsilegir og ég sá mynd af þeim og ég gat ekki annað en starað á þá í svona hálftíma eða eitthvað,“ segir hún frá en að partípinnarnir séu sleikjóar sem fást víða í vegasjoppum og búðum sem eigi að höfða til erlendra ferðamanna.
Elísa, sem segist vinna mikið með menningararf í verkunum sínum, var önnum kafin undanfarnar vikur og mánuði við undirbúning en hún er einnig á sinni lokaönn í Myndlist við LHÍ.
„Ég útskrifast núna bara á föstudaginn og var að sýna útskriftarverkið mitt í maí,“ segir hún og viðurkennir að hún hafi verið farin að finna fyrir þó nokkru stressi þegar leið að sýningunni.
Opnun sýningarinnar verður sem fyrr nefnir klukkan 17:00 og verður boðið upp á andlitsmálningu og veitingar. Sýningin lokar svo klukkan 19:00 en hún stendur uppi þar til á sunnudaginn, 21. júní, en þá eru sumarsólstöður.