Útlit er fyrir hvassa vindstrengi undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis og fram á kvöld. Vakthafandi veðurfræðingur varar við að vindurinn verði það ákafur að hann reynist varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Norðlæg átt verður ríkjandi í dag og víðast verður vindstyrkurinn á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður þó syðst og austan Öræfa síðdegis, samkvæmt veðurspánni.