Vegagerðin varar við miklu hvassviðri á suðaustanverðu landinu í kvöld og í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Þar segir að í kvöld gangi í ákveðna norðvestanátt með vindhviðum að 30 metrum á sekúndu í vindstrengjum, allt frá Skaftafelli og austur á Egilsstaði.
Aðstæður verða því varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind og þau sem draga tengivagna. Vegagerðin hvetur fólk til að kanna skilyrði vel áður en haldið er af stað í ferðalög á þessum slóðum.
Síðdegis á morgun dregur heldur úr vindi og er búist við að lægi nærri hádegi á sunnudag.