Samtök iðnaðarins, SI, telja að peningastefnunefnd eigi að halda stýrivöxtum óbreyttum í 7,75%. Vextir hafa verið hækkaðir tvisvar í ár, um samtals hálft prósentustig. Peningastefnunefnd kynnir næstu vaxtaákvörðun á miðvikudag.
„Hagkerfið kólnar hratt, aðhaldsstig peningastefnunnar er þegar mikið og á næstu vikum munu liggja fyrir upplýsingar sem geta haft afgerandi áhrif á verðbólguhorfur. Að mati SI kallar staðan á þjóðarsátt þar sem hagstjórnaraðilar stilla saman strengina og finna samhljóm um þær aðgerðir sem þarf til að ná niður verðbólgu og vöxtum,“ segir í tilkynningu samtakanna.
„Raunstýrivextir eru háir og yfir því stigi sem peningastefnunefndin telur að þurfi til að beina verðbólgunni niður i í 2,5% verðbólgumarkmið bankans. Aðhald peningastefnunnar er því þétt.“
Ekki nóg að horfa bara á stöðu verðbólgunnar
Bent er á að verðbólga sé enn há og verðbólguvæntingar sömuleiðis. „Það þýðir þó ekki sjálfkrafa að rétt sé að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar.“
Í grein samtakanna segir að ekki nægi að horfa á stöðu verðbólgunnar. Meta þurfi hvernig síðustu vaxtahækkanir eigi eftir að hafa áhrif á eftirspurn, fjárfestingu, atvinnu og verðbólgu á næstu misserum. Áhrifin af aðhaldi peningastefnunnar séu enn að koma fram.
„Reynslan sýnir að tafir á því að draga úr aðhaldi geta gert peningastefnuna sveiflumagnandi og leitt til þess að hún verði aðhaldssamari en efnahagshorfur gefa tilefni til“
Aukin svartsýni
Samtökin benda á að stjórnendur fyrirtækja og almenningur líta á aðstæður í efnahagslífinu á svartsýnni hátt en áður.
„Væntingavísitala Gallup mældist 49,2 í júní en var 112,6 í júní 2025. Vísitalan er nú langt undir 100 stigum, sem þýðir að svartsýnir neytendur eru mun fleiri en bjartsýnir en því var öfugt farið í júní í fyrra. Hið sama má lesa út úr niðurstöðum könnunar Gallup á væntingum stjórnenda fyrirtækja.“
Í júní sögðu 5% stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins aðstæður í efnahagslífinu góðar en 64% slæmar. Á sama tíma í fyrra sögðu 43% aðstæðurnar góðar en 15% töldu þær slæmar.
Merki um vaxandi vanskil í byggingariðnaði
Um mitt þetta ár námu skuldir byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur 476 milljörðum. Þær jukust um 74 milljarða, eða 18%, frá áramótum.
„Alvarleg vanskil greinarinnar, vanskil í meira en 90 daga, námu 29,7 ma.kr. um mitt ár, samanborið við 9,3 ma.kr. um áramót. Vanskilahlutfallið hafði þannig hækkað úr 2,3% í 6,2% á fyrstu sex mánuðum ársins.“
Frekari vaxtahækkun myndi hækka fjármagnskostnað og þrengja því enn frekar að greininni. Það telur SI leiða í för með sér minni fjárfestingu, aukið atvinnuleysi til skamms tíma og minna framboð íbúða þegar fram í sækir.