Þetta kemur fram í á umferðin.is, vefsíðu Vegagerðarinnar. Á mynd af vettvangi má sjá að fellihýsi virðist hafa fokið af veginum. Jón Þór Karlsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir að bíll með hjólhýsi fór þversum og fór hjólhýsið á hliðina.
Búið er að opna aftur fyrir umferð en gengur hún heldur hægt. Ekki hefur verið tilkynnt um slys á fólki. Töluvert hvassviðri er á svæðinu og gæti óhappið mögulega tengst því.
Gera má ráð fyrir því að margir leggi nú leið sína til Reykjavíkur frá Selfossi þar sem tónlistarhátíð var þar um helgina.
Fréttin hefur verið uppfærð.