Hátt í fjörutíu vísindamenn bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, koma hingað til lands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkva á sólu á andrúmsloft jarðar. Framkvæmdastjóri Geimvísindastofnunar Íslands segir þetta stærsta verkefni sem NASA hefur ráðist í hér á landi.
Rannsaka áhrif almyrkvans á andrúmsloft jarðar
„Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu yfir Íslandi. Það gerist þegar tunglið fer fyrir sólina og kemur alveg í veg fyrir að ljós berist til jarðar að degi til. Það er töfrandi upplifun, þið sjáið fullkomið sólarlag allan sjóndeildarhringinn. Dýrin bregðast við þessu og þetta er ótrúleg upplifun,“ segir Kelly Korreck, doktor í geimeðlisfræði.
Kelly fer fyrir hátt í 40 vísindamönnum á vegum NASA, bandarísku geimferðastofnunarinnar, sem koma hingað til lands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkvans á andrúmsloft jarðar.
„Við rannsökum bæði sólina og andrúmsloftið. Við verðum á flugi með WB57-flugvél frá Keflavík og fylgjum ferli myrkvans og tökum myndir af kórónu sólar, eða ytri kórónu eða lofthjúpi sólar, sem aðeins er sjáanlegur við almyrkva. Það hjálpar okkur að taka myndir til að fá skilning á því hvernig útgeislunin er, sem veldur geimveðri og norðurljósum. Við setjum einnig upp loftbelgi sem rannsaka andrúmsloftið.“
Þá nýtist rannsóknin við að bæta veður- og loftslagslíkön – og vísindamenn öðlast dýpri skilning á geimveðri.
„Þetta er veðurfar sem geimfarar þurfa að kunna skil á á ferð sinni til tunglsins og Mars. Þetta ætti einnig að gefa okkur betri spár um norðurljós og spá betur fyrir um áhrifin á dreifingarkerfi raforku og flug flugvéla,“ segir Kelly.
Stærsta rannsókn sem NASA hefur ráðist í hér á landi
Geimvísindastofnun Íslands hefur milligöngu um rannsóknina. Daniel Robert Leeb, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, segir rannsóknina þá stærstu sem NASA hefur ráðist í hér á landi. Tækifæri Íslands á sviði geimrannsókna séu mikil.
„Það er engin spurning að einn besti staðurinn á jörðinni til að sjá sólmyrkva nú í ár er á Íslandi. En að Ísland sé staðurinn sem vísindamenn frá NASA koma til þess að vinna með vísindamönnum hér er alveg einstakt,“ segir Daniel.
„Vonandi lærum við með þessum rannsóknum ekki aðeins meira um nálægustu stjörnuna okkar, heldur meira um hvernig Ísland getur tekið virkari þátt í rannsóknum og könnun á himingeimnum.“
Skipulagning á lokametrunum
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vinnur að aðgerðaráætlun vegna almyrkvans í samstarfi við markaðsstofur, ferðaþjónustufyrirtæki og fleiri.
Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn, segir skipulagningu á lokametrunum.
„Það eru umferðarskipulögin sem skipta máli, það er þjónusta, ýmis konar þjónusta. Það verður aukning í erlendum ferðamönnum,“ segir Runólfur.
„Það er klárt að við Íslendingar munum vilja sjá þetta. Við erum að leggja áherslu á að hér á suðvesturhorninu, þéttbýlasta svæðinu, getum við verið að grilla úti í garði og upplifað þennan atburð. Þannig að við þurfum kannski ekki að setjast upp í bíl og búa til einhverja þjóðvegahátíð úr þessu, heldur getum við upplifað þetta heima.“
Viðbúið sé að Íslendingar á öðrum landsvæðum vilji koma og upplifa almyrkvann.
„Þannig að við þurfum að hafa umferðarskipulag, lögreglan þarf aðstoð björgunarsveita, Vegagerðarinnar og það eru fjöldamargir aðilar sem eru að leggja hönd á plóg til þess að þetta gangi sem best.“