Úkraínuforseti segir að loftvarnakerfi hefðu getað bjargað mannslífum í árásum Rússlandshers á Úkraínu í nótt. Árásirnar eru með þeim mannskæðustu á þessu ári.
Sautján voru drepnir og fjörutíu og fjórir særðust í árásum Rússlandshers á Kænugarð og nágrenni í Úkraínu í nótt.
Í tilkynningu rússneska hersins segir að ráðist hafi verið á birgðastöðvar og flutningamiðstöðvar sem notaðar hafa verið til að geyma og dreifa vopnum og ýmsum hergögnum.
Úkraínumenn ítrekað óskað eftir fleiri loftvarnakerfum
Úkraínuher tókst ekki að skjóta niður eitt einasta flugskeyti Rússa í árásinni. Úkraína hefur ítrekað óskað eftir fleiri bandarískum Patriot-loftvarnakerfum til að verjast langdrægum eldflaugum Rússa.
Á fundi leiðtoga Bandaríkjanna og Úkraínu í síðustu viku samþykkti Donald Trump Bandaríkjaforseti að Úkraínumenn fengju að framleiða slík kerfi.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir tafir á afhendingu loftvarnakerfa frá bandamönnum hafa leitt til skelfilegs mannfalls og mikillar eyðileggingar. Hann segir íbúðarhús, lestarstöð og vöruhús hafa orðið fyrir árásunum.
Þvertaka fyrir að árásir beinist að almennum borgurum
Átökin milli Úkraínu og Rússlands hafa stigmagnast á undanförnum vikum en bæði ríki hafa þvertekið fyrir að árásir beinist að almennum borgurum.
Rússar hafa aukið í árásir sínar á Kænugarð og árás næturinnar var ein sú mannskæðasta á þessu ári. Fyrr í vikunni lýstu úkraínsk stjórnvöld yfir reiði sinni vegna myndbands sem sýndi mann eltan af árásardróna. Þau sögðu rússnesk stjórnvöld vísvitandi stunda veiðar á almennum borgurum.
Á sama tíma hafa Úkraínumenn ráðist á borgaralega innviði í Rússlandi í auknum mæli, þar á meðal vöruhús verslunarrisans Wildberries. Daginn áður sögðu rússnesk stjórnvöld sjö hafa látist og 58 særst þegar dróni hæfði baðströnd í Krasnodar-héraði í suðurhluta landsins.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, sagði í gær að Evrópusambandið hefði fengið 1,4 milljarða evra úr frystum rússneskum eignum. Fjármunirnir yrðu nýttir til að styðja Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi.