Þriggja manna fjölskylda frá Kólumbíu sem lýst var eftir í gær var handtekin þegar hún kom til Íslands vegna gruns um innflutning fíkniefna.
Þetta staðfestir Jón Halldór Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Að öðru leyti getur lögregla ekki tjáð sig frekar um málið að svo stöddu.
Fjölskylda þremenninganna lýsti eftir þeim og sagði að ekkert hefði spurst til þeirra frá komunni til Íslands 28. júlí. Fjölskyldan hefði hvorki ekki skilað sér á hótelið sem hún ætlaði að dvelja á. Þá hefðu ítrekaðar tilraunir til að hafa samband ekki borið árangur.