Tvítug kona sem gengur með hækju vegna fötlunar segist hafa orðið fyrir óhugnanlegri reynslu í Ytri Njarðvík þegar ókunnugur maður elti hana um bæinn og síðar alla leið heim til hennar.
Hún greinir frá atvikinu í Facebook hópnum Íbúar Ytri-Njarðvíkur. Hún segist hafa verið á leið heim úr Nettó eftir að hafa farið út að ganga og fá sér ferskt loft þegar hún tók eftir manni ganga við hlið sér.
Að hennar sögn rétti maðurinn fram höndina eins og hann vildi að hún tæki í hana. Hún gerði það ekki en velti fyrst fyrir sér hvort hann hefði haldið að hún væri að detta vegna hækjunnar.
Reyndi að komast undan manninum
Konan segist hafa orðið sífellt óöruggari og reynt að láta líta út fyrir að hún væri á leið inn á snyrtistofu við Elliheimilið. Maðurinn hafi þá einnig gengið að hurðinni.
„Þá byrja ég að fara í panik í hausnum,“ skrifar hún.
Hún ákvað því að fara inn á bókasafnið í Hljómahöllinni. Maðurinn kom ekki strax á eftir henni og segist konan hafa náð að róa sig um stund.
Hún sendi systur sinni skilaboð og bað hana að hringja. Á meðan þær ræddu saman sá konan að maðurinn var kominn inn á bókasafnið.
Systir hennar hafði þá samband við föður þeirra, sem kom á staðinn innan við mínútu.

Elti feðginin heim
Þegar konan og faðir hennar yfirgáfu bókasafnið sáu þau manninn aftur fyrir utan. Þau héldu áfram heim á leið en samkvæmt frásögn Hildar fylgdi maðurinn þeim alla leið að heimili þeirra.
Faðir hennar fór síðar í Nettó og sá þar sama mann fyrir utan verslunina, þar sem hann sat og drakk bjór með öðrum mönnum.
Hún segir reynsluna hafa vakið hjá sér mikinn ótta og birti frásögnina til að vara aðra íbúa svæðisins við manninum.