Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur bætt við sig tugþúsendum fylgjendum á samfélagsmiðlum síðustu daga. Hún er á heimleið frá Tyrklandi eftir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í Ankara í vikunni.
Kristrún virðist hafa vakið talsverða lukku meðal Tyrkja síðustu daga. Hún bætir ört við sig tyrkneskum fylgjendum á samfélagsmiðlinum Instagram og fjöldi netverja hefur birt myndskeið frá heimsókn hennar til Ankara.
„Þú ert eins og Heidi úr Ölpunum“
Margir Tyrkir lýsa hrifningu sinni á íslenska forsætisráðherranum í athugasemdum og lofsama hana fyrir reisn, auðmýkt og glæsileika og bjóða hana velkomna aftur til landsins.
„Þú ert eins og Heidi úr Ölpunum,“ segir einn nýr aðdáandi Kristrúnar.
„Þú lítur vel út, herra forseti,“ segir annar. „Ég vona að þú getir komið í beinu flugi og auðveldað vegabréfsáritunarferlið; við myndum gjarnan vilja heimsækja landið þitt og sjá norðurljósin. Ég vona líka að þú komir til Istanbúl og skoðir borgina í næstu heimsókn.“
Þrjátíu þúsund nýir fylgjendur
Um þrjátíu þúsund hafa bæst við fylgjendahóp Kristrúnar síðan á þriðjudag og er hún með rúmlega 72 þúsund fylgjendur þegar þetta er skrifað.
Þetta er að vísu ekki í fyrsta skipti sem Kristrún vekur athygli erlendis, hún bætti einnig við sig fylgjendum eftir fund með Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, í maí.
Myndböndum og klippum rignir inn á samfélagsmiðla. Einhverjir netverjar hafa tekið saman myndskeið af forsætisráðherra á X. Þar er henni hrósað í hástert fyrir sjálfstraust sitt og fatastíl.