Einn af hverjum 6.000 sem leigja sér rafskútu endar hérna bráðamóttökunni. Þriðjungur fullorðinna er undir áhrifum áfengis.
„Virku dagana er það 17% að meðaltali sem er undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna þegar að þeir slasast á rafskútum en um helgar er um helmingurinn sem viðurkennir að hafa verið undir áhrifum þegar slysið varð,“ segir Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir.
Rafskútuslys eða áfengisslys?
Fjórir læknar hafa birt niðurstöður rannsóknar sinnar á rafskútuslysum og um þær er fjallað í Læknablaðinu sem kom út í dag. Hjalti Már er einn þeirra.
„Það er alveg augljóst mál að áfengi er þarna mjög skaðlegt. En það er spurning líka hvort við eigum að tala um þetta sem rafskútuslys eða áfengisslys,“ segir Hjalti Már.
Getur þú lýst þeim áverkum sem þú og þið hér hafið meðhöndlað eftir svona slys?
„Já þetta eru áverkar sem eru oft ekki léttvægir. Þetta eru mjög oft andlitsáverkar, þetta eru beinbrot og þetta eru ljótir skurðir og það var áberandi að meira en helmingur þeirra sem leitaði til okkar þurfti endurkomu, umtalsverður hluti þurfti að leggjast inn og það er ljóst að ansi mörg munu búa við varanlega verki, færniskerðingu og eða lýti út af þessum áverkum,“ segir Hjalti Már.
Nýr flokkur slysa
Hefur þessi nýi ferðamáti haft áhrif á álagið á bráðamóttökunni?
„Þau áhrif eru mælanleg en þau eru samt ekki mikil en það er alveg ljóst að það hefur orðið til nýr flokkur af slysum með tilkomu þessa ferðamáta. Það er alveg ljóst að slysatíðni á rafskútum er mun meiri heldur en af bílaumferð en líka meiri heldur en af reiðhjólum.))
Maður sér stundum að það eru fleiri en einn á rafhlaupahjóli?
„Já, sú hegðun virðist vera mun algengari meðal barna og ungmenna undir 18 ára aldri og í þeim hópi voru 20% sem að gáfu upp að þau hafi verð tvö eða jafnvel þrjú á rafskútunni þegar að slysið varð. Þetta er náttúrulega mun hættulegra heldur en að vera einn og við mælum eindregið með að þetta sé stoppað og að börn séu ekki að gera þetta,“ segir Hjalti Már.
Líkur á að slasast á rafskútu eru margfalt hærri en líkurnar á því að slasast í bílferð. Athygli vekur að slysunum fer fækkandi þrátt fyrir aukna notun ferðamátans. Bráðalæknar telja það starfa af aukinni færni og meiri meðvitund um hættuna sem fylgir skútunum.
„Já, ég er alveg sannfærður um að mjög öflugt forvarnarátak á vegum Samgöngustofu hefur skilað árangri og sérstaklega hvað varðar slys á börnum og yngri börnunum þá einkum. Rafskútur eru umhverfisvænar en þær eru bara ekkert sérstaklega hollar. Það er bara umtalsverð slysatíðni sem þeim fylgir.“
„Og þess vegna þykir okkur sem stöndum að þessari rannsókn mikilvægt að það sé frekar reynt að efla hjólreiðar og ég vil velta upp þeirri spurningu hvort að það ætti að takmarka fjölda af rafskútum sem að eru í boði á leigunum en fjölga á móti rafhjólum sem væri hægt að nálgast með sama hætti í borginni,“ segir Hjalti Már.