Að minnsta kosti 31 var drepinn í skot- og sjálfsmorðssprengjuárás á lögreglustöð í norðurhluta Pakistan í gærkvöld og hundrað til viðbótar særðust. Sextán hinna látnu eru lögreglumenn og langflestir hinna særðu, sem margir eru í lífshættu.
AFP hefur þetta eftir háttsettum embættismanni innan lögreglunnar sem segir að enn sé barist við árásarmennina.
Þeir ruddust inn í stöðina sem er í bænum Kohat og hýsir meðal annars hryðjuverkadeild og sérsveit héraðslögreglunnar. Vígasveitin Ittehad-ul-Mujahideen Pakistan, sem er tengd sveitum talibana í landinu, hefur lýst ábyrgð á atlögunni.
Kenna talibönum um fjölgun árása á landamærahéruð
Stjórnvöld í Pakistan hafa kennt vígamönnum frá nágrannaríkinu Afganistan um mikla fjölgun árása á landamærahéruð sunnanvert í landinu. Talibanar í Afganistan hafa þvertekið fyrir það.
Pakistanski flugherinn hefur gert mannskæðar árásir sem sagðar eru beinast að herbúðum vígasveita í Afganistan. Talibanastjórnin og Sameinuðu þjóðirnar segja tugi almennra borgara hafa verið drepna í loftárásum Pakistana í júní.
Forsætisráðherrann Shehbaz Sharif fordæmdi atlöguna að lögreglustöðinni og lýsti sorg yfir örlögum þeirra myrtu og særðu.
Þeim verði veitt besta læknisaðstoð sem völ væri á. Sharif sagði málið verða rannsakað í hörgul. Forsetinn Asif Ali Zardari tók í sama streng og boðaði algera útrýmingu hryðjuverkasveita sem réðust að landinu erlendis frá.