Trump ýjar að samkomulagi en Íranar segja enga ákvörðun liggja fyrir

Trump ýjar að samkomulagi en Íranar segja enga ákvörðun liggja fyrir

Trump ýjar að samkomulagi en Íranar segja enga ákvörðun liggja fyrir

Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins segir írönsk stjórnvöld ekki hafa tekið lokaákvörðun um samkomulag við Bandaríkin. Hann sagði að Íran myndi ekki gera málamiðlanir um „rauðar línur“ í viðræðunum.

Trump fullyrti fyrr í kvöld að sátt hefði náðst milli ríkjanna og að samkomulag yrði líklega undirritað í Evrópu á næstu dögum – jafnvel um helgina. Hann sagði að hann myndi ekki sjálfur undirritað að heldur yrði J.D. Vance varaforseti fulltrúi Bandaríkjanna.

Útför Alis Khamenei, fyrrum æðstaklersk Írans sem féll í árásum Bandaríkjanna og Ísrael í febrúar, hefur verið frestað. Þetta segir borgarstjóri Tehran.

Til stóð að Khamenei yrði borinn til grafar í byrjun júní en hún verður þess í stað haldin í kringum mánaðamótin. Þetta er ekki í fyrst sinn sem útförinni er frestað. Hún átti upphaflega að vera í mars en var frestað vegna stríðsins.

Ef samkomulag verður undirritað milli Bandaríkjanna og Íran ætla Bandaríkin ekki að taka yfir Kharg-eyju, segir Trump. Hann birti færslu á Truth Social í dag þar sem hann sagði að Bandaríkin ætluðu að taka yfir hana í náinni framtíð.

Hann sagðist einnig telja að æðstiklerkur Írans hefði samþykkt meint samkomulag en írönsk stjórnvöld hafa ekki sent frá sér yfirlýsingu eða brugðist við fullyrðingum Trumps.

Trump segir meint samkomulag við Írana fela í sér skilyrði varðandi kjarnorkuáætlun Írana.

„Íranar munu aldrei eiga kjarnorkuvopn, það er allur tilgangurinn með því sem við þurftum að ganga í gegnum til að ná þessu,“ sagði hann við blaðamenn í Hvíta húsinu.

Hormússund verði opnað um leið og samkomulagið hafi verið undirritað. Undirritun verði líklega í Evrópu og jafnvel um helgina.

Írönsk stjórnvöld hafa ekki gefið frá sér yfirlýsingu um samkomulag né brugðist við þessum fullyrðingum Trumps.

Trump segir að Bandaríkin hafi náð sátt við Írana og að hann eigi von á að hún verði undirrituð á næstu dögum. Þetta sagði hann við blaðamenn í Hvíta húsinu. Undirritunin verði líklega í Evrópu.

Heimildir íranska ríkismiðilsins Fars herma að enginn samningstexti sé á samningaborðinu Fars vísar í heimildarmenn tengdum samninganefnd Írana.

Trump sagði í færslu sinni að hann hefði afstýrt þungum árásum sem hann hótaði fyrr í dag vegna þess að góður gangur væri í viðræðum og að báðar hliðar væru sáttar við helstu atriði í viðræðunum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að ráðast á Íran af fullum þunga í kvöld eins og hann boðaði fyrir nokkrum klukkustundum. Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Socal í dag sagði Trump að Bandaríkin hefðu í hyggju að taka yfir Kharg-eyju á næstunni, ásamt öðrum olíuinnviðum Írans. Kharg-eyja er meiriháttar olíuvinnslueyja undan ströndum Írans.

Trump dró síðar í land og sagðist efast um að Bandaríkjamenn treystu sér til að taka yfir eyjuna. Nú á sjötta tímanum tilkynnti hann aftur á sama miðli að árásunum væri aflýst vegna þess hve vel viðræður við Íran gengju.

Árásir Bandaríkjanna á Íran héldu áfram í nótt. Í þeim var meðal annars ráðist á þrjú flutningaskip á Óman-flóa með þeim afleiðingum að þrír indverskir sjómenn létu lífið.

Íranar hafa varað við því að vopnahléð milli þeirra og Bandaríkjanna hafi litla þýðingu í ljósi átakanna síðustu sólarhringa. Fulltrúar fjölda ríkja og ríkjabandalaga hafa varað við áframhaldandi stigmögnun og þrýst á ríkin að ná samkomulagi um endalok stríðsins sem allra fyrst.

Yfirvöld í Íran hóta kröftugum hefndaraðgerðum ef Bandaríkin fylgja eftir fyrirætlunum sínum um að taka yfir Kharg-eyju. Bandarísk stjórnvöld hafa sagt eyjuna vera „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans“.

Ebrahi Azizi, yfirmaður þjóðaröryggis- og utanríkisstefnunefndar íranska þingsins, lýsti Donald Trump Bandaríkjaforseta sem „rugluðum og óstöðugum“ í samtali við íranska fjölmiðla í dag.

Azizi sagði Írana vera að fullu undirbúna fyrir mögulega atlögu Bandaríkjamanna að eyjunni. Hann sagði viðbúnaðarstig herafla Írans í hámarki á Kharg-eyju.

„Herafli okkar er reiðubúinn, með allan sinn styrk og alla sína getu,“ sagði Azizi.

Stjórnvöld á Indlandi funduðu í dag með Jason Meeks, varasendiherra Bandaríkjanna í Nýju Delí. Tilgangur fundarins var að mótmæla aðgerðum Bandaríkjanna sem leiddu til dauða þriggja indverskra sjómanna á olíuflutningaskipinu Settebello við strendur Óman í gær.

Mennirnir þrír, sem nú hafa verið nafngreindir, gegndu ólíkum hlutverkum á skipinu. Aditya Sharma var skipstjórnarnemi, Shivanand Chaurasia var vélsmiður og Patnala Suresh starfaði sem yfirverkfræðingur.

Skipamálaráðherra Indlands segir dauða sjómannanna þriggja vera tjón sem ómögulegt verður að laga. Hann kveðst vera afar hryggur yfir atvikinu sem sé „hörmulegt.“ Ráðherrann segir að lík mannanna þriggja verði send aftur til Indlands við fyrsta tækifæri.

Hezbollah-samtökin segjast hafa skotið niður dróna ísraelska hersins nærri Bekaa-dalnum í austurhluta Líbanon í dag.

Þetta staðfesta ríkisfjölmiðlar í Líbanon.

Fyrr í dag gerði Ísraelsher loftárás nærri sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta landsins.

Einn lést og 17 særðust þegar Ísraelsher gerði loftárás nærri sjúkrahúsi í Týros í dag.

Samkvæmt líbönskum fjölmiðlum hafnaði loftskeyti Ísraelshers á íbúðahúsnæði nálægt sjúkrahúsi í borginni Týros í suðurhluta Líbanons.

Tíu starfsmenn sjúkrahússins særðust, þar á meðal hjúkrunarfræðingar sem urðu fyrir glerbrotum og braki sprengingarinnar. Þá urðu einnig skemmdir á bráðamóttöku sjúkrahússins og sjúkraherbergjum.

Rúmlega 3.700 hafa látið lífið og 11.483 særst frá því árásir Ísraels á Líbanon færðust í aukana í byrjun mars, að því er fram kemur í gögnum heilbrigðisráðuneytis Líbanons.

Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur hingað til gengið erfiðlega að fá Írana til að semja um frið eða varanlegt vopnahlé, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að samningar séu á næsta leiti.

Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft verulegar efnahagslegar afleiðingar í för með sér um allan heim.

Í Heimsglugga vikunnar er gerð ítarleg grein fyrir átökunum í Mið-Austurlöndum. Þar er meðal annars fjallað um aðgerðir Bandaríkjaforseta og hvaða árangri þær hafa skilað, stríðsrekstur stríðandi fylkinga, þátttöku Ísraels og hættur á langvinnri krísu.

Hægt er að hlusta á Heimsgluggann í spilara RÚV, neðst í fréttinni hér að neðan.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkin ætla að ráðast á Íran af miklum krafti í kvöld.

„Einhvern tímann í ekki svo fjarlægri framtíð ætlum við að taka yfir Kharg-eyju ásamt öðrum olíuinnviðum og ná fullri stjórn á olíu- og gasmörkuðum þeirra, rétt eins og við gerðum við Venesúela,“ segir forsetinn á samfélagsmiðlinum Truth Social.

Í færslunni endurtók hann jafnframt fullyrðingar sínar um að Bandaríkin hafi með árásum sínum eyðilagt alla hernaðarinnviði Írana sem búi þar af leiðandi ekki lengur yfir neinni hernaðargetu.

Hvað er Kharg-eyja? Hvert er mikilvægi hennar?

Kharg-eyja er um þrjátíu kílómetra frá meginlandi Íran, norðarlega í Persaflóa og um 22 ferkílómetrar að stærð. Um 90% af hráolíuútflutningi Írans fer um eyjuna og er hún því afar mikilvæg fyrir efnahag landsins.

Bandaríski herinn hefur ítrekað gert árásir á eyjuna og hafa embættismenn lýst henni sem „tengingu fyrir allt olíuframboð Írans.“ Bryggjur hennar standa út í átt nærliggjandi hafsvæða og dýpt hafnarinnar rúmar risaolíuflutningaskip, sem gerir hana að mikilvægum stað fyrir olíudreifingu.

Ísraelskir hermenn hafa ráðist inn í bæina Ma'ariya og al-Arda í suðurhluta Sýrlands. Í frétt sýrlenskra fjölmiðla er haft eftir embættismanni að fulltrúar ísraelska hersins hafi í dag sett upp eftirlitsstöðvar í bæjunum og hindrað för íbúa.

Muwaffaq Mahmoud, yfirmaður bæjarráðs Abidin og Ma'ariya, segir í samtali við fjölmiðla að ísraelskir hermenn hafi ráðist inn í bæinn á vel búnum herbílum við sólarupprás og komið sér fyrir í grennd við vatnsból.

Sýrlensk yfirvöld hafa ítrekað óskað eftir því að ísraelsk yfirvöld yfirgefi yfirráðasvæði sitt með öllu.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ræddi þróun átakanna í Mið-Austurlöndum við Kaju Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, í gegnum fjarfundarbúnað í dag.

Á fundinum fór Araghchi afar hörðum orðum um árásir Bandaríkjamanna og sagði þær brot á sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Hann ítrekaði jafnframt að aðgerðir Bandaríkjamanna hefðu fellt vopnahléið úr gildi og að Bandaríkin bæru ábyrgð á afleiðingum þess.

Þá beindi utanríkisráðherrann spjótum að aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna og sagði þögn hafa ríkt á meðal ríkjanna varðandi árásir Bandaríkjanna á Íran. Slíkt aðgerðarleysi á heimsvísu myndi einungis draga enn frekar úr öryggi og stöðugleika um allan heim.

Utanríkisráðuneyti Sádí-Arabíu hvetur yfirvöld í Íran og Bandaríkjunum til þess að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fyrirbyggja frekari stigmögnun átaka í Mið-Austurlöndum.

Í yfirlýsingu hvetja stjórnvöld í Sádí-Arabíu fulltrúa beggja ríkja til að snúa aftur að samningaborðinu og hefja uppbyggilegar viðræður. Mikilvægt sé að hlífa íbúum Mið-Austurlanda og víðar fyrir afleiðingum endurupptöku stríðsins og að endurheimta öryggi og stöðuleika til lengri tíma.

Hakan Fidan, utanríkisráðherra Tyrklands, tekur í sama streng. Hann segir árásum ríkjanna tveggja verða að linna sem allra fyrst. Þá séu Tyrkir í nánu sambandi við Washington, Teheran og sáttasemjara Pakistan og að mikilvægt sé að ljúka friðarviðræðum og ná samkomulagi.

Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.

Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusambandið sé tilbúið til að beita Íran nýjum viðskiptaþvingunum ef stríðinu í Mið-Austurlöndum ljúki ekki í bráð.

„Ef Teheran heldur áfram á rangri braut verður ESB að vera tilbúið að beita Íran auknum þrýstingi með markvissum aðgerðum,“ sagði Meloni þegar hún ávarpaði Evrópusambandið á fundi í dag.

Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag að sundinu hefði verið lokað vegna árása Bandaríkjahers við Persaflóa.

Stofnunin vísaði líka til yfirlýsinga íranska byltingarvarðarins í gær um að búið væri að loka Hormússundi fyrir umferð þar til annað verður ákveðið. Bandaríkjaher vísaði því þá á bug að Írönum hefði tekist að stöðva siglingar um sundið.

Þrír indverskir farmenn féllu þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands greindi frá þessu í dag.

Indverjar boðuðu sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund til að mótmæla árásinni. Þetta er annað skipið með indverska áhöfn sem verður fyrir árás Bandaríkjamanna í þessari viku. Á mánudag voru 24 skipverjar úr áhöfn skips fluttir frá borði vegna elds sem kviknaði í árás.

Jórdanski herinn segist hafa skotið niður 20 eldflaugar sem Íranar skutu í átt að stjórnstöð Bandaríkjahers í landinu.

Loftvarnakerfi Jórdaníu og konunglegi jórdanski flugherinn skutu niður 20 eldflaugar sem var skotið frá Íran í átt að Azraq-svæðinu í Zarqa-héraði, sagði herinn í yfirlýsingu. Svæðið er um 80 kílómetra austur af Amman, höfuðborg Jórdaníu.

Herinn sagði að þrátt fyrir að talsvert brak hefði fallið til jarðar hefði enginn særst.

Sendinefnd frá Katar fór til Írans til viðræðna við þarlenda ráðamenn. Fundurinn stóð fram á nótt en sendinefndin hélt aftur til síns heima í morgun.

Þetta hefur AFP-fréttastofan eftir ónefndum embættismanni. Hann sagði viðræðurnar hafa átt sér stað að höfðu samráði við Bandaríkjastjórn.

Kínversk stjórnvöld hvetja Bandaríkjamenn og Írana eindregið til að hætta öllum hernaðaraðgerðum.

Lin Jian, talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, kom stefnu stjórnvalda á framfæri á blaðamannafundi.

„Kína hvetur eindregið til þess að viðeigandi aðilar hætti þegar í stað hernaðaraðgerðum, snúi sér að viðræðum og samningum, bregðist við tilraunum annarra ríkja til að miðla málum og nái saman um víðtækt og varanlegt vopnahlé eins fljótt og auðið er,“ sagði Lin Jian.

Íranska utanríkisráðuneytið fordæmdi í morgun árásir Bandaríkjahers á landið. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að árásirnar séu ólöglegar og glæpsamlegar og þar að auki sé þýðingarlaust að halda áfram viðræðum um frið á meðan Bandaríkjamenn haldi árásum sínum áfram.

Íranar vörpuðu allri sök á herðar Bandaríkjamanna.

Góðan dag og velkomin í fréttavakt um hernaðarátök við Persaflóa og víðar í Miðausturlöndum. Ég heiti Brynjólfur Þór Guðmundsson og fylgi ykkur inn í daginn.

Bandaríkjamenn gerðu nýjar árásir á Íran í gærkvöld. Íranir svöruðu með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Í fréttinni að neðan má lesa um atburði gærkvöldsins og næturinnar. Nýjustu tíðindi birtast svo hér að ofan.

#samkomulagi #segja #trump #íranar #ýjar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-11-trump-yjar-ad-samkomulagi-en-iranar-segja-enga-akvordun-liggja-fyrir-477753

📰 Aðrar fréttir

Elon Musk's SpaceX raises $75bn ahead of record stock market debut
📅 11.06.2026 👁️ 0
Elon Musk's SpaceX raises $75bn ahead of record stock market debut
SpaceX has raised $75bn (£56bn) from financial firms ahead of it becoming a publicly traded company on Friday, in what is expected to be the highest-v...
Lýsa upp­götvuninni sem gríðar­stórum „hvalakirkjugarði“ - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Lýsa upp­götvuninni sem gríðar­stórum „hvalakirkjugarði“ - Vísir
Í vísindagrein á vef Nature.is lýsa vísindamennirnir, sem eru frá Kína, Ítalíu og Nýja Sjálandi, fundi sínum. Hópurinn hefur komið búnaði og myndavélu...
Methiti í júní á Suðurskautslandinu
📅 11.06.2026 👁️ 1
Methiti í júní á Suðurskautslandinu
Óvenjulega hár hiti hefur mælst á Suðurskautslandinu þar sem 28 ára gamalt hitamet fyrir júnímánuð hefur verið slegið. Loftslagsfræðingurinn Jose Luis...
'I spent uni savings on getting my teeth fixed' - how lack of NHS care is hitting hard
📅 11.06.2026 👁️ 0
'I spent uni savings on getting my teeth fixed' - how lack of NHS care is hitting hard
Last summer Deacon Galloway was busy getting ready for university. His grandparents had been putting money away to help him with the costs, but then h...
Meningitis B vaccine to be offered to thousands of young people in July
📅 11.06.2026 👁️ 0
Meningitis B vaccine to be offered to thousands of young people in July
A million young people in England, Wales and Scotland will be offered a vaccine to help protect against meningitis B.The one-off programme has been la...
Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja - Vísir
Á liðnu ári fóru yfir fimmtíu börn undir fimmtán ára aldri fyrir dóm grunuð um tilraun til manndráps eða morð í Svíþjóð. Gunnar Strömmer, dómsmálaráðh...
Girl, 14, charged with attempted murder after Manchester school knife attack
📅 11.06.2026 👁️ 0
Girl, 14, charged with attempted murder after Manchester school knife attack
A 14-year-old girl has been charged with three counts of attempted murder after a knife attack at a school in Manchester on Tuesday, counter-terror po...
Trump says deal to end Iran war is close after calling off strikes
📅 11.06.2026 👁️ 1
Trump says deal to end Iran war is close after calling off strikes
US President Donald Trump has claimed an initial agreement aimed at ending the war with Iran is close after posting that he had cancelled strikes on t...
Mexico 2-0 South Africa Highlights - World Cup 2026 - 16 June 2026
📅 11.06.2026 👁️ 3
Mexico 2-0 South Africa Highlights - World Cup 2026 - 16 June 2026
Three players are sent off as World Cup co-hosts Mexico defeat South Africa in a dramatic opening match at a packed Azteca Stadium.
Armed forces minister quits after Healey exit as defence funding row deepens
📅 11.06.2026 👁️ 2
Armed forces minister quits after Healey exit as defence funding row deepens
The armed forces minister has followed former Defence Secretary John Healey in quitting the government in a dispute with Prime Minister Sir Keir Starm...
Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð - Vísir
Til stóð að ljúka þinginu á morgun en áætluninni var kippt úr sambandi. Enn á eftir að afgreiða stór mál líkt og samgönguáætlun, fjármálaáætlun og sto...
Eldur í Árbænum
📅 11.06.2026 👁️ 1
Eldur í Árbænum
Eldur kom upp í geymslu í íbúðarhúsnæði í Árbænum. Samkvæmt varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru allar slökkvistöðvar upphaflega senda...
Lífkennaskráning farþega hægir á afgreiðslu en eykur öryggi
📅 11.06.2026 👁️ 2
Lífkennaskráning farþega hægir á afgreiðslu en eykur öryggi
Nýtt landamæraeftirlitskerfi var tekið í notkun á Keflavíkurflugvellli í október. Andlit og fingraför fólks utan Schengen-svæðisins eru skráð í það me...
Lífkennaskráning farþega í Leifsstöð veldur töfum en eykur öryggi
📅 11.06.2026 👁️ 1
Lífkennaskráning farþega í Leifsstöð veldur töfum en eykur öryggi
Nýtt landamæraeftirlitskerfi var tekið í notkun á Keflavíkurflugvellli í október. Andlit og fingraför fólks utan Schengen-svæðisins eru skráð í það me...
Protests pass off without incident after two nights of unrest
📅 11.06.2026 👁️ 2
Protests pass off without incident after two nights of unrest
After two nights of unrest, pockets of protests held in some areas of Northern Ireland have passed off without incident following a "robust" police re...
Protests pass off without major incident after two nights of unrest
📅 11.06.2026 👁️ 1
Protests pass off without major incident after two nights of unrest
After two nights of unrest, pockets of protests held across Northern Ireland have passed off without major incident following a "robust" police respon...
Eldur í Ár­bænum - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Eldur í Ár­bænum - Vísir
Þetta staðfestir varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.  Allir slökkviliðsbílar voru sendir af stað en öllum snúið við nema einum. Töluver...
Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra
📅 11.06.2026 👁️ 1
Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra
Fyrrverandi herforinginn Dan Jarvis hefur verið skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að John Healey sagði af ...
Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands
📅 11.06.2026 👁️ 2
Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands
Fyrrverandi herforinginn Dan Jarvis hefur verið skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að John Healey sagði af ...
Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins - Vísir
Á sjötta tug  jafnaðarmanna ritaði undir skoðanapistil inn á vef Vísis í dag þar sem hópurinn mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar og krefjast þ...
Protests pass off peacefully after two nights of unrest
📅 11.06.2026 👁️ 2
Protests pass off peacefully after two nights of unrest
After two nights of unrest, pockets of protests held in some areas of Northern Ireland have passed off without incident following a "robust" police re...
Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Vinsælt lag Sigurðar varð loks til þegar hann hitti Braga Valdimar: „Þá auðvitað datt þetta bara þar á einhverju korteri. Óþolandi“ - DV
Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson verður á ferðinni þetta sumarið eins og flest önnur. Hann hefur verið að spila nokkra tónleika að undanförnu me...
35 alþjóðlegir listamenn með sýningu á Eyrarbakka
📅 11.06.2026 👁️ 2
35 alþjóðlegir listamenn með sýningu á Eyrarbakka
Um 35 listamenn frá ólíkum heimshornum hafa dvalið á Eyrarbakka frá 15. maí til að vinna sín fjölbreyttu listaverk, sem lýkur með sýningum, gjörningum...
David Sullivan: London Stadium and West Ham Women unaware of contact ban
📅 11.06.2026 👁️ 0
David Sullivan: London Stadium and West Ham Women unaware of contact ban
London Stadium - who own and operate the home of West Ham United - has raised concerns that they were not told about safeguarding restrictions relatin...
Allt að 200 ára veggja­krot fannst við fram­kvæmdir - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Allt að 200 ára veggja­krot fannst við fram­kvæmdir - Vísir
Gamli skóli Menntaskólans í Reykjavík er eitt helsta kennileiti miðborgarinnar. Hann var fyrsta þartilgerða skólahús landsins, reist á árunum 1843 til...
Formaður VR: Stjórnvöld og fyrirtæki verða að axla ábyrgð
📅 11.06.2026 👁️ 2
Formaður VR: Stjórnvöld og fyrirtæki verða að axla ábyrgð
Verð á matvöru á Íslandi er 55 prósent meira að meðaltali en annars staðar í Evrópu. Fyrir utan Sviss er hér dýrast að kaupa í matinn segir í yfirstan...
Elon Musk's SpaceX valued at nearly $1.8tn ahead of record share sale
📅 11.06.2026 👁️ 2
Elon Musk's SpaceX valued at nearly $1.8tn ahead of record share sale
SpaceX has said shares should sell to the public for at least $135 (£100) when it becomes a publicly traded company on Friday, in what is expected to ...
Íslenskur maður finnur ekki sársauka
📅 11.06.2026 👁️ 1
Íslenskur maður finnur ekki sársauka
Íslenskur maður finnur ekki sársauka 73 ára mað­ur á Ís­landi er án sárs­auka­skyns en að­eins ör­fá til­felli þessa erfða­sjúk­dóms hafa greinst á he...
„Konráð Guðjónsson: „Góða skemmtun“ að lækka laun Íslendinga um 10%“
📅 11.06.2026 👁️ 1
„Konráð Guðjónsson: „Góða skemmtun“ að lækka laun Íslendinga um 10%“
Konráð Guðjónsson hagfræðingur telur að Ísland myndi líklega þurfa að ganga inn í evrusvæðið á mun veikara gengi en nú er ef til upptöku evru kæmi. Ha...
Glenn Close fær loksins Óskarsverðlaun - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Glenn Close fær loksins Óskarsverðlaun - DV
Bandaríska leikkonan Glenn Close, sem lengi hefur verið talin meðal fremstu leikara Hollywood sem aldrei hafa hlotið Óskarsverðlaun, mun nú brátt fá s...
Sjálftakan „til há­borinnar skammar“ - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Sjálftakan „til há­borinnar skammar“ - Vísir
Biðlaun þingmanna eru aftur í umræðunni eftir afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún á rétt á biðlaunum í allt að ...
Fæðingum fjölgar um meira en þriðjung á Akureyri
📅 11.06.2026 👁️ 1
Fæðingum fjölgar um meira en þriðjung á Akureyri
Fimmtíu og sex fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri en á sama tíma í fyrra. Deildarstjóri segir aukninguna mjög á...
World Cup kicks off in Mexico with Shakira, performers and vibrant fans
📅 11.06.2026 👁️ 1
World Cup kicks off in Mexico with Shakira, performers and vibrant fans
The 2026 World Cup has begun in Mexico City with an opening ceremony filled with vibrant colour, local culture and a performance by global music star ...
Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 1
Forstöðukona Konukots segist skilja vel áhyggjur nágranna: „Maður hræðist það sem maður þekkir ekki“ - DV
Málefni Konukots hafa verið í umræðunni í vikunni eftir að DV birti frétt á laugardag þar sem rætt var við átta fyrirtækjaeigendur í nágrenni Konukots...
Aflýsir kröftugu á­rásunum - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Aflýsir kröftugu á­rásunum - Vísir
Fyrr í dag boðaði forsetinn kröftugar árásir á Íran auk hernáms Kharg-eyju á Persaflóa. Einnig ætlaði hann að taka alfarið yfir olíu- og gasmarkaði Ír...
Healey quits as defence secretary in row over military spending
📅 11.06.2026 👁️ 2
Healey quits as defence secretary in row over military spending
John Healey has quit as defence secretary amid a battle within government over funding for a long-delayed military spending plan.He said a proposed se...
Dozens of children put at risk after gender care failures at GP clinic, inquiry finds
📅 11.06.2026 👁️ 1
Dozens of children put at risk after gender care failures at GP clinic, inquiry finds
Dozens of children questioning their gender, including some under 13 years old, were inappropriately prescribed medication by a Brighton GP practice, ...
Ari og Pétur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar
📅 11.06.2026 👁️ 2
Ari og Pétur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar
Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, og Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sitja í nýjum stýrihóp um hagræðingu í Reykjavíkurbor...
Krabbameinsfélagið veitti 118 milljón króna styrk til 13 rannsókna
📅 11.06.2026 👁️ 1
Krabbameinsfélagið veitti 118 milljón króna styrk til 13 rannsókna
Árlega greinast að meðaltali 2.055 einstaklingar með krabbamein og 1 af hverjum 3 Íslendingum fær krabbamein á lífsleiðinni. Vísindasjóður Krabbameins...
Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Eld­fim staða, sorg­legt á­huga­leysi og ráð­gáta - Vísir
Við ræðum einnig við formann Eflingar sem segir áhugaleysi þingmanna um að breyta reglum um biðlaun vera sorglegt. Það sé ósanngjarnt að þingmenn fái ...
Vísað út úr flug­vél: „Þetta er bara ömur­legt“ - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Vísað út úr flug­vél: „Þetta er bara ömur­legt“ - Vísir
„Þetta er bara ömurlegt, ég verð að viðurkenna það,“ segir Ingólfur í samtali við fréttastofu. Hópurinn átti bókað flug frá Akureyri til Amsterdam nú ...
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ósammála um Húnavallaleið
📅 11.06.2026 👁️ 1
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins ósammála um Húnavallaleið
Stytting hringvegarins um Húnavallaleið við Blönduós og Vindheimaleið í Skagafirði hefur verið rædd í rúman áratug. Í samgönguáætlun til ársins 2040, ...
Enn ein afsögn bresks ráðherra veikir stöðu Starmers enn frekar
📅 11.06.2026 👁️ 1
Enn ein afsögn bresks ráðherra veikir stöðu Starmers enn frekar
Afsögn John Healey varnarmálaráðherra Bretlands í dag kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Keir Starmer forsætisráðherra hefur verið í margs konar va...
Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar - DV
📅 11.06.2026 👁️ 1
Viðar segir ekki standast að launahækkanir leiði til verðbólgu – Verð úti í búð lækkar ekki heldur bara hækkar - DV
Það stenst illa að segja að einstefna sé frá launahækkunum og yfir í verðbólgu, þetta sagði Viðar Ingason, hagfræðingur VR, á opnum fundi VR, LÍV og f...
„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 1
„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“ - DV
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, setur stórt spurningamerki við að hópurinn sem gagnrýnir þingflokk Samfylkingarinnar vilji að Ísland gangi...
Hafnar kreddum um verð­bólguna - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Hafnar kreddum um verð­bólguna - Vísir
„Við efndum til þessa fundar, VR og Fagfélögin, í tilefni þeirrar miklu umræðu sem ríkjandi hefur verið í samfélaginu um verðlag og verðbólgu,“ sagði ...
Marteinn Helgi Sigurðs­son er látinn - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 2
Marteinn Helgi Sigurðs­son er látinn - Vísir
Arngrímur Vídalín, dósent í íslenskum miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands, minnist Marteins í fallegri færslu á Facebook. Þar segir hann frá því að ...
How do I catch up on the World Cup without any spoilers?
📅 11.06.2026 👁️ 2
How do I catch up on the World Cup without any spoilers?
It is a dilemma plenty of fans in the UK will have - and we are giving you the chance to follow the World Cup without spoilers.
Child-rape sentence reignites scrutiny of UK high street mini-marts
📅 11.06.2026 👁️ 2
Child-rape sentence reignites scrutiny of UK high street mini-marts
Being bribed with vapes and alcohol by mini-mart workers is a "normal" thing to hear about, two schoolgirls tell us on Hexthorpe Rd in Doncaster.They ...
BBC tours UFC arena at White House
📅 11.06.2026 👁️ 1
BBC tours UFC arena at White House
White House reporter Bernd Debusmann gets a preview of the temporary structure that will host a UFC fight 14 June.