Trump tilkynnir um samkomulag milli Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í færslu á Truth Social að Bandaríkin, Danmörk og Grænland hafi náð samkomulagi.
Forsetinn segir í færslunni að samkomulagið veiti Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og „öllum öðrum þörfum“ Grænlands.
Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur staðfesti rétt í þessu.
„Það gleður mig að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland, sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og kemur að fullu til móts við ALLAR okkar mörgu bandarísku áhyggjur,“ skrifaði Trump á Truth Social.
„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að þróa mikla hernaðarlega viðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu.“
Hann segir að þessi lausn sé góð fyrir Danmörku, Grænland, Bandaríkin og bandamenn allra landanna.
„Í meira en öld hafa forsetar verið meðvitaðir um hernaðarlega mikilvægi Grænlands, en engum þeirra tókst að gera nokkuð í málinu,“ segir Trump:
„Ég er stoltur af því að vera forsetinn sem hefur endanlega og varanlega leyst úr þessu mjög mikilvæga máli. Hér er um að ræða samkomulag sem gildir „að eilífu“ – það hefur engan gildistíma! Okkur þykir mikill heiður og erum stolt af því sem nýlega hefur gerst, og bandaríska þjóðin mun kunna að meta allt það sem samið var um í dag.“
Trump segir að Bandaríkin muni þegar í stað hefja ferli við að koma á umfangsmikilli hernaðarviðveru í „viðkomandi hluta“ Grænlands, og að Bandaríkin muni vinna með Grænlendingum að uppbyggingu hennar og framkvæmdum.
Samkomulagið bannar andstæðingum Bandaríkjanna að byggja herstöðvar eða gera viðkvæmar fjárfestingar á Grænlandi án samþykkis Bandaríkjanna. Forsetinn segir samninginn hafa engan gildistíma.

