Hellisskógur er glæsilegur skógur á 126 hektara svæði við Ölfusá þar sem Skógræktarfélag Selfoss er með öfluga starfsemi. Á milli 60 og 70 trjátegundir eru í skóginum.
Um helgina eða rétt fyrir helgina var nokkrum trjám stolið úr skóginum, allt sjaldgæfar tegundir þegar skógrækt er annars vegar.
„Þetta er eitthvað sem er vaxandi vandamál og ekki bara hér, þetta er um allt, í þjóðskógunum, þetta er í almenningsgörðum og víðar til dæmis á Reykjavíkursvæðinu”, segir Örn Óskarsson, formaður Skógræktarfélags Selfoss.
Og það var verið að stela héðan frá ykkur?
„Já, í þessu tilfelli voru tré tekin, sem hafa nú ákveðið persónulegt gildi fyrir mig en ég sáði fyrir þessum trjám á sínum tíma og ræktaði þau upp og plantaði hérna en þetta var virginíuheggur, garðahlynur og svo kastanía, hrossakastanía, sem er nú ekki auðvelt að koma til” segir Örn.
Örn segir að um myndarleg tré hafi verið að ræða sem voru rifin upp þannig að holurnar standa bara eftir tómar.
„Það er einhver sem þekkir til og velur úr tré sem voru þarna eitthvað álitleg”.
Já, það eru fagmenn að störfum?
„Svona innan gæsalappa. En að vera að slíta þetta upp í fullum vexti er ekki fagmannalegt, það lýsir svona ákveðinni heimsku”, segir Örn.
En það er ekki bara í Hellisskógi á Selfossi sem trjám er stolið, nei, nei, það er á fleiri stöðum í bæjarfélaginu.
„Já, það var fyrr í sumar en þar var hreinsað beðið við sundlaugina nýplöntuð og síðan hefur verið tekið úr miðbænum líka stór tré,” segir Örn.
Og þetta að lokum frá Erni.
„Já, það er nú aðallega að fólk fari nú að gæta að sér með verðmæt tré, sem það er að kaupa dýrum dómum í gróðrarstöðum og átta sig á því að þetta eru þjófar á ferð, sem hika ekki við að fara inn í garða, einkalóðir og hirða þetta”.