Líklegt þykir að kviknað hafi í þurrum jarðveg og eldurinn borist þaðan í skóglendi.
Vegum hefur verið lokað og heimili rýmd í Bedar. Um 50 leituðu skjóls í menningarmiðstöð í bænum.
Greint hefur verið að viðbragðssveitir hersins hafi verið kallaðar til til að aðstoða við slökkvistörf.
Spánn er meðal þeirra Evrópuríkja sem hefur orðið fyrir barðinu á hitabylgju síðustu vikur en appelsínugular viðvaranir eru í gildi í Andalúsíu. Hiti, þurrkar og sterkir vindar hafa aukið líkurnar á gróðureldum í allri álfunni.
Forsætisráðherrann Pedro Sanchez sagðist í maí gera ráð fyrir að viðbragð stjórnvalda vegna mögulegra elda yrði líklega meira en nokkurn tímann áður nú í sumar.