Erlendur karlmaður tók einn lögreglumann hengingartaki og sparkaði í kvið og læri annars. Hlaut hann tveggja mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir.
Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, 20. apríl.
Atvikið átti sér stað laugardaginn 18. janúar árið 2025 í bifreiðakjallara í Reykjavík. Var maðurinn ákærður og dæmdur fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa tekið einn lögreglumann sem var við skyldustörf hengingartaki og þrengt að öndunarvegi hans. Hlaut hann mar á nefi og mar og yfirborðsáverka á vör. Þá hafi maðurinn einnig sparkað í kvið og læri annars lögreglumanns.
Var þess krafist að maðurinn yrði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaður. Játaði hann skýlaust brot sín og var málið því dómtekið án frekari sönnunarfærslu.
Horft var til þess að maðurinn hefði ekki áður gerst brotlegur við lög hér á landi og að hann hefði játað brot sín skýlaust. Þótti dómur hans hæfilegur tveggja mánaða fangelsisrefsing skilorðsbundin til tveggja ára.
Auk þess var honum gert að greiða rúmar 45 þúsund krónur í sakarkostnað.