Mál mannsins fór fyrst fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Þar var hann sakaður um að hafa áreitt fjórar konur kynferðislega á árunum 2023 og 2024. Öll fjögur atvikin voru álíka þar sem maðurinn ók að konum sem voru fótgangandi og bað hann þær um að koma nær bílnum.
Í fyrstu tveimur tilfellunum, sem áttu sér stað árið 2023, sýndi hann konunum myndskeið af fólki að stunda samfarir. Í öðru tilfellinu stundaði hann einnig sjálfsfróun. Báðum konunum var afar brugðið en þær náðu annars vegar myndskeiði af bíl hans og hins vegar bílnúmerinu. Maðurinn neitaði sök en taldi dómarinn framburð þeirra beggja stöðugan og trúverðugan.
Í seinna atvikinu lágu einnig fyrir upptökur úr eftirlitsmyndavél þar sem bíll af sama lit og sömu gerð ók í átt að vettvangi rétt fyrir atvikið. Maðurinn var þá handtekinn tuttugu mínútum eftir að konan tilkynnti hann til lögreglu.
Fór út úr bílnum, beraði sig og elti hana
Maðurinn var dæmdur fyrir sams konar atvik í júlí 2024. Þegar konan kom að bílnum beraði hann kynfæri sín og fróaði þar til hún hljóp í burtu. Konan sagði að maðurinn hefði spurt hvað klukkan væri og þegar hún nálgaðist bílinn hafi hún séð að hann hefði tekið buxurnar sínar niður og var að fróa sér. Sömuleiðis lýsti hún mikilli vanlíðan og hræðslu.
Móðir þriðja brotaþolans tilkynnti atvikið til lögreglu. Þær fundu manninn á Facebook og sagðist hún hafa þekkt hann þegar hún sá mynd af honum.
Fjórða skiptið átti sér stað degi eftir það þriðja. Þá var maðurinn sakaður um að hafa keyrt við hlið fjórða brotaþolans með opinn glugga og kallað til hennar. Hann hafi síðan farið út úr bílnum, berað kynfæri sín og elt hana á meðan hann kallaði til hennar. Þá fór hann aftur inn í bílinn sinn og elti konuna. Eftir skamma stund fór hann aftur út úr bílnum, beraði getnaðarlim sinn og elti konuna.
Hún bað hann ítrekað um að láta sig í friði og kynnti atvikið strax til lögreglunnar. Hún gaf greinagóða lýsingu á manninum og bílnum og kannaðist lögreglan því við manninn. Þá höfðu borist allmargar tilkynningar um svipaða háttsemi. Lögreglan fór á heimili hans og var hann ekki þar. Þegar hann sneri aftur var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.
Fengu hundruð þúsunda
Dómarinn við héraðsdóm mat svo að framburður allra kvennanna væri trúverðugur. Frásögn mannsins taldist ekki trúverðug og gat hann fært litlar skýringar á því hvar hann hafi verið.
Héraðsdómur taldi rétt að skikka hann í átta mánuði skilorðsbundið fangelsi. Málinu var hins vegar áfrýjað til Landsréttar sem þyngdi dóminn í þriggja mánaða fangelsisvist og sex mánuði í skilorðsbundið fangelsi.
Manninum var gert að greiða fyrstu konunni fimm hundruð þúsund, annarri konunni sex hundruð þúsund, þeirri þriðju átta hundruð þúsund og fjórðu eina milljón króna. Einnig þarf hann að greiða kostnaðinn við áfrýjunina sem nam 2,4 milljónum króna.