Í nýrri bók sem gefa á út í næstu viku rifjar Spencer upp dagana eftir að Díana dó í bílslysi í París, 36 ára gömul. Hann segist hafa lent í rifrildi við Karl um þær áætlanir konungsfjölskyldunnar að láta Vilhjálm og Harry, syni Karls og Díönu, sem voru þá fimmtán og tólf ára gamlir, ganga á eftir kistu hennar í jarðarförinni.
Spencer heldur því fram að hann hafi sagt Karli konungi, sem var þá prins, að systir hans hefði ekki viljað leggja það á syni sína.
Við það á Karl að hafa sagt við Spencer:
„Hafðu engar áhyggjur. Við munum gleyma henni fljótt.“
Spencer, sem er breskur jarl, segir Karl hafa sýnt Díönu fyrirlitningu.
Buckingham-höll sendi í gærkvöldi út yfirlýsingu sem þykir merkilega harðorð, miðað við aðrar yfirlýsingar konungsfjölskyldunnar.
„Þótt við tjáum okkur ekki um bækur af prinsippástæðum, er hans hátign meðvitaður um að sá sársauki sem fylgir missi systkins getur haft áhrif á skynsemi, skekkt dómgreind og litað minningar á margan hátt sem aðrir gera sér ef til vill ekki grein fyrir, jafnvel mörgum árum eftir slíkan missi.“
BBC segir yfirlýsinguna minna á svör Elísabetar drottningar um ásakanir varðandi það að hún hafi sýnt rasisma þegar hún á að hafa spurt hversu dökkur Archie, sonur Harry og Maghan Markle, gæti orðið.
Sjá einnig: Hvorki Elísabet né Filippus ræddu húðlit Archie
Þegar Díana lét lífið var konungsfjölskyldan sökuð um að sýna ekki nægilega mikla samkennd og átta sig ekki á sorg bresku þjóðarinnar.
Spencer hélt ræðu í jarðarförinni þar sem hann talaði um að verja þá Vilhjálm og Harry svo þeir þyrftu ekki að ganga í gegnum þjáningar móður þeirra. Þótti það, og önnur ummæli í ræðu hans, vera gagnrýni á konungsfjölskylduna.