Mikill viðbúnaður var við ströndina í Brighton á Englandi í morgun eftir að þrjár konur fundust látnar í sjónum. Lögregla, strandgæsla og björgunarsveitir voru kallaðar út eftir að fjöldi tilkynninga barst um að látnar konur í sjónum.
Samkvæmt lögreglunni voru konurnar látnar þegar viðbragðsaðilar mættu á vettvang. Mikill viðbúnaður hefur verið á svæðinu síðan í morgun og lögregla hefur lokað hluta strandarinnar meðan rannsókn stendur yfir.
Rannsaka hvað gerðist
Yfirmaður hjá lögreglunni segir málið skelfilegt.
„Þetta er hörmulegt mál og rannsókn stendur nú yfir til að staðfesta hverjar þessar þrjár konur eru og hvað nákvæmlega gerðist,“ segir hann.
Hann biður almenning jafnframt um að halda sig frá svæðinu meðan neyðarþjónusta starfar á vettvangi.
Myndir frá staðnum sýna mikinn fjölda lögreglumanna við ströndina ásamt björgunarbátum á sjónum og þyrlu sem tók þátt í leitinni fyrr í morgun.
Samkvæmt breskum miðlum hefur ekki verið staðfest hvort um slys, sjálfsvíg eða sakamál sé að ræða. Þá hafa óstaðfestar upplýsingar gengið á samfélagsmiðlum um að konurnar hafi verið mjög ungar, en lögregla hefur ekki staðfest aldur þeirra eða aðrar upplýsingar um málið.
Brighton Beach er ein vinsælasta strönd Bretlands og svæðið yfirleitt troðfullt af bæði ferðamönnum og heimamönnum á þessum árstíma.