Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þrír starfsmenn á sjúkrahúsinu Vogi komnir í veikindaleyfi eftir að aðalstjórn SÁÁ lýsti yfir stuðningi við framkvæmdastjórn samtakanna á fundi í gær.
Það eru fagstjóri, fagstjóri lækninga og fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar sem allir unnu á Vogi.
Aðalstjórn SÁÁ kom saman í gær á aukaaðalfundi vegna stöðunnar sem upp er komin innan samtakanna og var vantrauststillaga, sem á sjöunda tug starfsmanna skrifuðu undir, tekin fyrir.
Í tilkynningu frá SÁÁ í dag segir að starfsfólki hafi verið gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þá lýsti aðalstjórn yfir stuðningi við framkvæmdastjórnina sem miðaði að því að tryggja heilbrigðisþjónustu samtakanna.
Starfsmenn fengu í morgun sent bréf frá aðalstjórn þar sem vonast var eftir sáttum:
„Það er von okkar allra að okkur takist að ná saman, hlusta hvert á annað og byggja upp það traust og þann vinnufrið sem þarf til að horfa fram á veginn,“ sagði í bréfinu.
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, kvaðst ekki laus í viðtal þegar fréttastofa leitaði eftir því og vísaði til tilkynningar samtakanna.
Til stendur að nýr forstjóri verði ráðinn á næstunni og er ráðningarferli hafið.
Mikil óánægja hefur ríkt meðal starfsmanna samtakanna undanfarið vegna framgöngu stjórnarinnar. Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir forstjóri SÁÁ og Þóra Björk Ingólfsdóttir fagstjóri meðferðarstöðvarinnar Víkur sögðu báðar upp störfum í ágúst og vísuðu til afskipta stjórnar af faglegu starfi SÁÁ og ráðningu nýs utanaðkomandi forstjóra.