Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Klukkan fimm í morgun voru alls sex vistaðir í fangageymslu. Einnig var tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 108 í Reykjavík og var málið afgreitt á vettvangi.
Lögreglan stöðvaði töluvert af ökumönnum vegna gruns um ölvunarakstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna. Flest málin voru afgreidd að lokinni blóðsýnatöku. Tveir fengu sekt fyrir of hraðan akstur í Garðabæ, annar ók á 132 km/klst þar sem hámarkshraðinn var áttatíu og hinn ók á 126 þar sem hámarkshraðinn var sömuleiðis áttatíu.
Einn maður var handtekinn í Grafarvoginum og vistaður í fangageymslu vegna ástands. Hann gat ekki sagt til nafns né hvar hann ætti heima.