Hannes Valle Þorsteinsson, fyrrum starfsmaður á leikskólanum Múlaborg, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlku á leikskólanum.
Maðurinn var sakfelldur fyrir nauðgun en sýknaður af annarri ákæru um kynferðislega áreitni gagnvart stúlkunni.
Dómur var kveðinn upp í gær en birtur í dag.
Hannes var ákærður fyrir að hafa í tvö aðgreind skipti haft önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna. Í fyrri lið ákærunnar var honum gefin að sök að hafa dregið niður buxur stúlkunnar á salernisbás og sett getnaðarlim sinn á milli læra hennar og viðhaft samfarahreyfingar.
Maðurinn gaf ekki skýrslu fyrir dómi en hann játaði sök í þessum lið ákærunnar að undanskilinni þeirri fullyrðingu að hann hafi viðhaft samfarahreyfingar.
Hannes hafði lýst því í skýrslutöku hjá lögreglu að hann hafi ítrekað „hömpað“ brotaþola. Leit dómurinn svo á að ákærði hefði viðurkennt þessa háttsemi.
„Játning ákærða er í samræmi við framburð brotaþola í Barnahúsi og verður hann sakfelldur fyrir hana,“ segir í dómnum.
Athugasemdir gerðar við yfirheyrslu lögreglu
Í síðari lið fyrri ákæru málsins var Hannesi einnig gefin sök nauðgun og kynferðisbrot gegn stúlkunni þar sem hann notfærði sér að hún gat ekki spornað gegn verknaðinum sökum svefndrunga.
Var honum gefin að sök að hafa frá september 2024 til maí 2025 misnotað stúlkuna í hvíldarherbergi á leikskólanum. Hannes var sýknaður af þessum ákærulið.
Í dómnum eru gerðar athugasemdir við yfirheyrslu lögreglu varðandi þennan tiltekna ákærulið. Segir að gengið sé hart gegn ákærða þar sem framburður hans sé kerfisbundið dreginn í efa og hann ítrekað sakaður um ósannindi.
„Þegar játningin kemur hefur verið dregin upp ákveðin mynd sem ákærði virðist samþykkja undir þrýstingi lögreglu. Undir síendurteknum ásökunum um óheiðarleika og þrýstingi um að „segja réttu söguna“ kvaðst hann loks „halda“ að hann hefði brotið á brotaþola áður,“ segir í dómnum.
Hann hafði áður neitað atvikinu í viðtölum bæði hjá undirmatsmanni og yfirmatsmönnum.
Þá er jafnframt tekið fram að dómurinn telji Hannes vera með skerta greind og það hafi átt að vera lögreglu augljóst. Í yfirheyrslum hafi hann ítrekað ekki skilið tiltekin orð eða spurningar og svari spurningum á einfaldan og barnalegan hátt.
Greind metin á tornæmisstigi
Greind mannsins er metin á tornæmisstigi en hann býr þó ekki við geðsjúkdóm og er því talinn sakhæfur.
Þriðja ákæran í málinu var gefin út í apríl og var hún sameinuð í málinu. Í þeirri ákæru var Hannesi gefið að sök að hafa bitið stúlkuna í rassinn. Hann var sýknaður af þessari ákæru þar sem háttsemin var ekki talin kynferðislegs eðlis.
Hannesi var gert að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur, helming málsvarnarlauna til skipaðs verjanda síns, sem nema 8 milljónum króna, og helming þóknunar skipaðs réttargæslumanns brotaþolans, sem nemur tæpri milljón.
Þá er honum gert að greiða helming annars sakarkostnaðar sem nemur í heild 3,8 milljónum króna.
Fréttin hefur verið uppfærð