Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þessi þriðji maður verður í varðhaldi til 14. ágúst næstkomandi. Hinir mennirnir verða í haldi annars vegar til 21. ágúst, og hins vegar til 17. ágúst
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.
Til rannsóknar er manndráp sem mun hafa verið framið í heimahúsi í Kópavogi um miðjan dag á sunnudag. En eftir að lögreglu var tilkynnt um alvarlega líkamsárás var erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri fluttur á Landspítalan, þar sem hann svo lést síðdegis sama dag.
Samkvæmt heimildum fréttastofu sáu nágrannar tvo menn hlaupa frá húsinu þar sem meintur glæpur mun hafa verið framinn. Einhverjir munu hafa séð dularfullan rauðan bíl, sem hafi um tíma numið staðar í miðri götunni fyrir framan húsið, og þá hafi einhverjir lýst því að mennirnir hafi hlaupið í átt að bílnum.
Jafnframt lýsa nágrannar því að hafa heyrt hróp og köll.
Skömmu eftir að tilkynnt var um málið um þrjúleytið á sunnudag var einn maður handtekinn. Þá voru fleiri menn handteknir í umfangsmikilli lögregluaðgerð í Gnoðarvogi í Reykjavík.
Lögmaður eins mannanna, sem úrskurðaður hefur verið í varðhald, greindi frá því í kvöldfréttum Sýnar í gær að hann hyggðist áfrýja ákvörðuninni um gæsluvarðhald.
„Hann átti engan þátt í því sem þarna átti sér stað; hann einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B, hafði enga aðkomu að málinu að öðru leyti,“ sagði lögmaðurinn sem um ræðir, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
„Það er löngu tímabært að íslenskir dómstólar hætti að vera svona leiðitamir við ákæruvaldið og standi í lappirnar gagnvart kröfum ákæruvaldsins.“
Ertu með ábendingu eða veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hérna. Fullum trúnaði er heitið.