Þórdís Kolbrún önnur eftir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu

Þórdís Kolbrún önnur eftir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu

Skipun Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur sem sendiherra fór í gegnum lögbundið ferli, svo sem hæfnismat, áður en af henni varð. Hún kvaddi Alþingi í dag eftir að tilkynnt var um skipun hennar.

Þórdís Kolbrún, sem er fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu hafa haft djúpstæð áhrif á hana. Hún gegndi embætti utanríkisráðherra frá 2022 til 2023 og aftur um hríð árið 2024.

Hún var gestur í Kastljósi í kvöld þar sem Bergsteinn Sigurðsson ræddi við hana um stefnubreytinguna og sýn hennar á utanríkismálin.

„Tímarnir bara breytast og hlutirnir gerast hratt“

Þórdís Kolbrún segir starfsbreytinguna ekki hafa verið lengi í bígerð. Hún hafi gefið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra svar í síðustu viku. Þá hafi lögbundið ferli tekið við. Þorgerður Katrín hafi átti frumkvæði að skipuninni.

„Hún bað mig einfaldlega um að hugsa það af alvöru að taka að mér þetta verkefni fyrir Ísland í ljósi þess að við þyrftum að manna þá pósta vel,“ segir Þórdís Kolbrún.

Hún segist ekki hafa getað séð það fyrir, fyrir aðeins tveimur árum, að hún yrði skipuð sendiherra fyrir fertugt.

„Tímarnir bara breytast og hlutirnir gerast hratt. Það var ekki þannig að ég hafi verið í leit að leið út úr stjórnmálum, eða til útlanda eða annað slíkt, en við lifum einfaldlega tíma þar sem ég er orðin nokkuð sannfærð um að það muni reyna á okkur sem fullvalda og sjálfstæða þjóð. Það muni reyna enn frekar á utanríkisþjónustuna og ég lít svo á, og er sannfærð um, að ég geti gert meira gagn fyrir Ísland með því að taka þetta að mér og byggi það á meðal annars reynslu og tengslaneti og þekkingu og öðru slíku og vonandi er það rétt.“

Öryggis- og varnarmálin verða plássfrekari

Aðspurð um að hvaða leyti sendiherrar geri gagn, umfram aðra stjórnmálamenn, segir Þórdís Kolbrún það fara eftir því hvert þeir eru sendir. Verkefnin séu mismunandi eftir löndum.

„En þetta er auðvitað þjónustuhlutverk – þú ert að sinna alls konar verkefnum. Okkar utanríkisþjónusta er líka smá þannig að þú gengur í öll verk. En það reynir auðvitað á bæði tvíhliða samskipti, svæðisbundið samstarf, alls kyns fundi, verkefni. Auðvitað líka borgaraþjónustu og annað slíkt.“

Lyklaskipti Utanríkisráðuneytið Þórdís Kolbrún Þorgerður Katrín
Frá lyklaskiptum í utanríkisráðuneytinu, þegar Þorgerður Katrín tók við ráðherraembættinu af Þórdísi.RÚV / Ari Páll Karlsson

Þá segist Þórdís Kolbrún telja að öryggis- og varnarmál eigi eftir að taka meira pláss en áður.

„Svo snýst þetta auðvitað mikið um mannleg samskipti og tengsl og, eftir því hvar þú ert, svona frekari samskipti, hvort sem það eru hugveitur eða ráðstefnur eða annað slíkt, þar sem að þú kemur okkar skilaboðum á framfæri,“ segir Þórdís Kolbrún.

Þá sé það hlutverk sendiherra að leita lausna, gæta hagsmuna Íslands og að vinna samkvæmt utanríkisstefnu landsins.

„Hlutverk sem ég tel mjög mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni“

Ekki liggur fyrir hvar Þórdís Kolbrún verður sendiherra.

Það hefur verið talað um að þú farir til Bretlands. Er það mikilvægur póstur núna?

„Það er sannarlega mikilvægur póstur. Ég get bara sagt að ef þær hugmyndir sem hafa verið nefndar við mig ganga eftir þá er um að ræða hlutverk sem ég tel mjög mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni,“ segir Þórdís Kolbrún.

Eitt sinn var það alsiða að stjórnmálamenn væru skipaðir sendiherrar beint af þingi en þessu var breytt fyrir nokkrum árum, í tíð Guðlaugs Þórs ef ég man rétt, og þá fór þetta í svona formlegra ferli. Er heppilegt að það sé staðið að þessu með þessum hætti, þó enginn efist nú um hæfni þína til þess að gegna starfinu?

Í raun má alveg segja að þessar breytingar, og ég held að mér sé óhætt að vitna í orð Guðlaugs Þórs sjálfs með það, væru einmitt hugsaðar til þess að manna ákveðna pósta með ákveðnum hætti. En þetta fór auðvitað í hið lögbundna ferli, þar sem að það er kannað bæði hæfi og hæfni og hæfnisnefnd og allt þar fram eftir götunum eins og er gert ráð fyrir í lögunum.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í pontu á Alþingi.
Þórdís Kolbrún steig fyrst á þing árið 2016.RÚV / Ragnar Visage

„Ég hef lofað mér því að gleyma því aldrei“

Þórdís Kolbrún segir tíma sinn í utanríkisráðuneytinu sannarlega hafa breytt henni.

„Ég hélt aldrei, og minni kynslóð var sagt, að svona hlutir myndu ekki gerast aftur í álfunni okkar og einhvern veginn að þetta kerfi væri bara komið til að vera. Ég hélt aldrei að það myndi reyna með þessum hætti á svona grundvallarafstöðu og grundvallargildi og hagsmuni. Ég hef lofað mér því að gleyma því aldrei, alveg sama hvað gerist,“ segir Þórdís Kolbrún.

Því miður telji hún hluti áfram eiga eftir að versna áður en þeir verða betri.

„Þess vegna skiptir máli að við öll vöndum okkur. Ekki bara sendiherra og ekki bara utanríkisráðherra heldur þingmenn og leiðtogar í samfélaginu, hvort sem það er í kennarastétt eða menningarstétt eða fjölmiðlum eða akademíu eða öðru. Ég bara held að það muni skipta máli að fólk láti það sig það varða og reyni að skilja hvað er að gerast til þess að við getum búið okkur undir breytingar á næstu misserum.“

#utanríkisráðuneytinu #kolbrún #þórdís #önnur #eftir


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-21-thordis-kolbrun-onnur-eftir-tima-sinn-i-utanrikisraduneytinu-473379

📰 Aðrar fréttir

All Passengers Evacuated After Smoke Alert at Tenerife Airport
📅 26.04.2026 12:06:00 👁️ 0

All Passengers Evacuated After Smoke Alert at Tenerife Airport

#passengers#evacuated#tenerife#airport#after
Brynjar óvinur íslenskra blaðamanna
📅 26.04.2026 12:00:16 👁️ 0

Brynjar óvinur íslenskra blaðamanna

#blaðamanna#íslenskra#brynjar#óvinur
Fjöru­tíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ - Vísir
📅 26.04.2026 11:53:43 👁️ 0

Fjöru­tíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ - Vísir

#tsjernobyl#heimurinn#fjörutíu#slysinu#ársins
Skot­á­rás á kvöld­verði Banda­ríkja­for­seta og klakstöðvar lúsmýsins - Vísir
📅 26.04.2026 11:45:47 👁️ 0

Skot­á­rás á kvöld­verði Banda­ríkja­for­seta og klakstöðvar lúsmýsins - Vísir

#bandaríkjaforseta#klakstöðvar#kvöldverði#lúsmýsins#skotárás
Palace holding talks over plans for King Charles' US visit after Washington shooting
📅 26.04.2026 11:45:06 👁️ 0

Palace holding talks over plans for King Charles' US visit after Washington shooting

#washington#shooting#holding#charles#palace
Plokkvinafélag stofnað á Selfossi
📅 26.04.2026 11:34:52 👁️ 0

Plokkvinafélag stofnað á Selfossi

#plokkvinafélag#selfossi#stofnað
Trump segir komið að Írönum að hringja - Vísir
📅 26.04.2026 11:26:23 👁️ 0

Trump segir komið að Írönum að hringja - Vísir

#hringja#írönum#trump#segir#komið
Áætla að 1,3 milljónir rússneskra hermanna hafi fallið í stríðinu
📅 26.04.2026 11:16:58 👁️ 0

Áætla að 1,3 milljónir rússneskra hermanna hafi fallið í stríðinu

#rússneskra#milljónir#hermanna#stríðinu#fallið
London Marathon 2026 results: Sabastian Sawe makes history with first competitive sub-two-hour marathon
📅 26.04.2026 10:44:26 👁️ 1

London Marathon 2026 results: Sabastian Sawe makes history with first competitive sub-two-hour marathon

#competitive#sabastian#marathon#results#history
Sjaldséðir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn
📅 26.04.2026 10:09:51 👁️ 1

Sjaldséðir hvolpar jarðúlfa komu í heiminn

#sjaldséðir#jarðúlfa#hvolpar#heiminn#komu
Sjö felldir í Úkraínu - Vísir
📅 26.04.2026 10:08:43 👁️ 1

Sjö felldir í Úkraínu - Vísir

#felldir#úkraínu#vísir
Higher prices could last for eight months after Iran war, minister says
📅 26.04.2026 09:54:53 👁️ 3

Higher prices could last for eight months after Iran war, minister says

#minister#higher#prices#months#could
King Charles will have 'appropriate security' for US visit, minister says
📅 26.04.2026 09:46:00 👁️ 2

King Charles will have 'appropriate security' for US visit, minister says

#appropriate#security#minister#charles#visit
Odd­vitar í Kópa­vogi um nýjustu könnun - Vísir
📅 26.04.2026 09:45:48 👁️ 2

Odd­vitar í Kópa­vogi um nýjustu könnun - Vísir

#oddvitar#kópavogi#nýjustu#könnun#vísir
How the White House correspondents' dinner shooting unfolded
📅 26.04.2026 09:43:42 👁️ 3

How the White House correspondents' dinner shooting unfolded

#correspondents#shooting#unfolded#dinner#white
Watch: How gunfire sparked chaos at Trump press dinner
📅 26.04.2026 09:43:42 👁️ 2

Watch: How gunfire sparked chaos at Trump press dinner

#gunfire#sparked#dinner#watch#chaos
Cole Tomas Allen: Suspected gunman at Washington press dinner identified as 31-year-old Californian
📅 26.04.2026 09:37:39 👁️ 1

Cole Tomas Allen: Suspected gunman at Washington press dinner identified as 31-year-old Californian

#californian#washington#identified#suspected#gunman
Cole Tomas Allen: What we know about press dinner shooting suspect
📅 26.04.2026 09:37:39 👁️ 4

Cole Tomas Allen: What we know about press dinner shooting suspect

#shooting#suspect#dinner#tomas#allen
Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín - DV
📅 26.04.2026 09:34:56 👁️ 3

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín - DV

#handteknir#neituðu#eftir#þrír#þeir
Jarðskjálfti 3,3 að stærð í suðaustur Noregi
📅 26.04.2026 08:56:18 👁️ 3

Jarðskjálfti 3,3 að stærð í suðaustur Noregi

#jarðskjálfti#suðaustur#noregi#stærð
Myndir: Upp­lausn á blaðamannamóttöku - Vísir
📅 26.04.2026 08:54:03 👁️ 5

Myndir: Upp­lausn á blaðamannamóttöku - Vísir

#blaðamannamóttöku#upplausn#myndir#vísir
Einar Kárason varar við ESB-aðild
📅 26.04.2026 08:48:32 👁️ 3

Einar Kárason varar við ESB-aðild

#kárason#einar#varar#aðild
Árásarmaður á kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í haldi
📅 26.04.2026 08:33:14 👁️ 4

Árásarmaður á kvöldverði blaðamanna í Hvíta húsinu í haldi

#árásarmaður#kvöldverði#blaðamanna#húsinu#hvíta
Þungskýjað suðvestanlands en glittir í sól norðaustanlands
📅 26.04.2026 08:30:44 👁️ 3

Þungskýjað suðvestanlands en glittir í sól norðaustanlands

#norðaustanlands#suðvestanlands#þungskýjað#glittir
What we know about gunfire at White House correspondents' dinner
📅 26.04.2026 08:05:41 👁️ 2

What we know about gunfire at White House correspondents' dinner

#correspondents#gunfire#dinner#about#white
What we know about shooting at White House correspondents' dinner
📅 26.04.2026 08:05:41 👁️ 4

What we know about shooting at White House correspondents' dinner

#correspondents#shooting#dinner#about#white
Kynjahlutföllin „alveg skelfileg“ á nýjum lista yfir bestu kvikmyndir 21. aldarinnar
📅 26.04.2026 08:00:14 👁️ 3

Kynjahlutföllin „alveg skelfileg“ á nýjum lista yfir bestu kvikmyndir 21. aldarinnar

#kynjahlutföllin#kvikmyndir#aldarinnar#skelfileg#alveg
Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi
📅 26.04.2026 08:00:00 👁️ 3

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi

#kollagenið#framleitt#blönduósi#íslenska#eina
Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar
📅 26.04.2026 07:53:40 👁️ 3

Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar

#starfsemi#mathallar#verulega#iðunnar#dregið
Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria
📅 26.04.2026 07:49:00 👁️ 2

Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria

#condition#motorbike#teenager#critical#canaria
Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir
📅 26.04.2026 07:39:24 👁️ 3

Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir

#snjókomu#slyddu#búast#vísir
Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year
📅 26.04.2026 07:39:00 👁️ 2

Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year

#tenerife#delayed#sports#centre#year
Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments
📅 26.04.2026 07:30:00 👁️ 5

Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments

#attachments#improving#document#sharing#secure
Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir
📅 26.04.2026 07:25:43 👁️ 3

Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir

#áfengishnupl#vopnaburður#ölvun#vísir
40 ár frá Chernobyl-slysinu
📅 26.04.2026 07:22:06 👁️ 3

40 ár frá Chernobyl-slysinu

#chernobyl#slysinu
Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir
📅 26.04.2026 07:03:00 👁️ 4

Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir

#nikótínpúðum#milljónir#seldu#vísir#dósa
SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands
📅 26.04.2026 06:29:00 👁️ 2

SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands

#occasional#weather#showers#islands#sunday
In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom
📅 26.04.2026 06:24:33 👁️ 4

In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom

#washington#pictures#ballroom#gunfire#chaos
London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?
📅 26.04.2026 05:15:26 👁️ 2

London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?

#marathon#runners#compete#london#sports
Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 0

Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons

#correspondents#checkpoint#multiple#suspect#charged
Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 3

Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint

#correspondents#checkpoint#suspect#dinner#charge
Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:22:59 👁️ 0

Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner

#correspondents#inside#dinner#shots#room
What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner
📅 26.04.2026 04:22:29 👁️ 1

What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner

#correspondents#gunshots#dinner#about#white
'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:08:27 👁️ 0

'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner

#correspondents#describes#confusion#donoghue#dinner
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut
📅 26.04.2026 03:12:42 👁️ 1

14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

#hraðbraut#sprengja#létust#sprakk#þegar
Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station
📅 26.04.2026 03:03:41 👁️ 1

Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station

#evacuated#suspected#dunmurry#explodes#station
Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership
📅 26.04.2026 02:43:41 👁️ 1

Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership

#leadership#majority#starmer#insists#labour
Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir
📅 26.04.2026 01:46:01 👁️ 1

Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir

#galakvöldverði#forsetinn#fluttur#brott#vísir
Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi
📅 26.04.2026 01:38:15 👁️ 1

Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi

#bandaríkjaforseti#galakvöldverði#árásarmaður#ráðherrar#fluttir
Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard
📅 26.04.2026 01:13:23 👁️ 0

Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard

#correspondents#suspected#gunshots#rushed#dinner