Þetta staðfestir Berglind Svavarsdóttir, lögmaður Þóru í málinu, en dómur var kveðinn upp í málinu klukkan 15. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Þinghald í málinu var lokað en vænta má þess að dómur verði birtur innan skamms.
Líkt og Vísir fjallaði um á sínum tíma krafðist Páll fjögurra milljóna króna vegna meintrar byrlunar fyrrverandi eiginkonu Páls, veikinda hans í kjölfarið og meints stuldar á síma hans. Starfsmenn Ríkisútvarpsins hefðu tekið við símanum, skoðað og afritað gögn úr honum og komið til blaðamanna Heimildarinnar og Kjarnans, sem hafi í framhaldinu unnið fréttir upp úr gögnunum.
Í stefnu Páls sagði að á því væri byggt að um væri að ræða refsiverð og skaðabótaskyld hegningarlagabrot sem brytu gegn rétti Páls til friðhelgi einkalífs og sem ekki yrði réttlætt með heimildum blaðamanna til gagnaöflunar.
Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra ákvað í lok september árið 2024 að hætta rannsókn í málinu. Sex blaðamenn fengu réttarstöðu sakbornings í málinu auk fyrrverandi eiginkonu Páls.