Fundur hófst klukkan tíu í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði í samtali við Vísi í gær að unnið væri að því að halda samtalinu lifandi. Staðan væri óbreytt og vildi hann ekki tjá sig efnislega um stöðu mála að öðru leyti.
Þá greindi hann frá því í gær að hann hefði óskað eftir því að fulltrúar Icelandair og FÍA tjái sig ekki við fjölmiðla „umfram það sem nauðsynlegt er.“ Kjarasamningar Icelandair við FÍA og Flugvirkjafélag Íslands runnu út í lok september. Þá eru samningar einnig lausir við Flugfreyjufélag Íslands en sú deila er ekki komin inn á borð ríkissáttasemjara.