Í þjóðaröryggisráði eiga fast sæti forsætisráðherra sem formaður ráðsins, utanríkisráðherra, dómsmálaráðherra og ráðuneytisstjórar ráðuneytanna þriggja. Enn fremur eiga sæti í ráðinu tveir þingmenn, annar úr þingflokki sem skipar meiri hluta á Alþingi en hinn úr þingflokki minni hluta. Þá sitja í ráðinu forstjóri Landhelgisgæslunnar, ríkislögreglustjóri og fulltrúi Landsbjargar.
Fram kemur í tilkynningu til fjölmiðla að fundurinn nú sé reglubundinn fundur ráðsins en vegna afmælis Landhelgisgæslunnar og þeirra tímamóta sé hann haldinn um borð í Þór. Georg Lárusson forstjóri gæslunnar mun hefja fundinn með erindi. Klukkan 10:40 skrifa Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undir tvo samninga við Ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæslu.
Þjóðaröryggisráð hefur eftirlit með því að þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland sé framkvæmd í samræmi við ályktun Alþingis og skal vera samráðsvettvangur um þjóðaröryggismál. Ráðinu er enn fremur ætlað að meta ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum og fjalla um önnur málefni sem varða þjóðaröryggi.